Grímsi GK blár eða rauður?
Sjómannahelgin er nýafstaðin og vil ég byrja á því að óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til Hamingju með daginn. Ansi mikið breyst á liðnum árum, núna var bara hátíð í Grindavík en frá um 1950 og eitthvað fram yfir aldamótin þá voru hátíðarhöld líka í Sandgerði og í Keflavík. En ekkert var þar í gangi, en það var þó sjómannamessa í Sandgerði, Garði og Reykjanesbæ og voru þær messur vel sóttar.
Annars þá er að færast smá ró yfir bátana á Suðurnesjunum, en þó eru nokkrir dragnótabátar á veiðum. Siggi Bjarna GK og Sigurfari GK hafa verið við veiðar við Suðurströndina frá Vík og austur að Gígjukvísl. Og hafa landað í Þorlákshöfn. Siggi Bjarna GK kom með fullfermi þangað, 31 tonn, og var steinbítur uppistaðan í þeim afla, 12 tonn og tæp 8 tonn af ýsu. Sigurfari GK hefur landað í Þorlákshöfn um 85 tonnum í 2 róðrum og eins og hjá Sigga Bjarna GK þá er líka steinbítur uppistaðan í aflanum eða um 40 tonn.
Í Sandgerði eru þrír bátar á dragnót, Benni Sæm GK sem hefur landað 28 tonnum í 4 róðrum. Stapafell SH með 22 tonn í 4 og Aðalbjörg RE sem er með 44 tonn í 4. Mjög blandaður afli er hjá öllum þessum þremur bátum en þó mest af ýmsum kolategundum.
Netabátarnir í Keflavík og Njarðvík eru svo til allir hættir veiðum og er Grímsi GK kominn í slipp en sá bátur hét upprunalega Vesturborg GK þegar að báturinn kom fyrst til Íslands en þá átti Valdimar ehf. í Vogum bátinn, báturinn fékk nafnið Valdimar GK 195 árið 2000 og hefur alla sína tíð á Suðurnesjunum verið á línu og verið blár á litinn, þangað til að báturinn var seldur til fyrirtækisins Admiral ehf., en á bak við það fyrirtæki er Sighvaldi Eiríkur Hólmgrímsson sem er sonur Hólmgríms sem ég hef margoft skrifað um hérna í þessum pistlum mínum. Hólmgrímur hefur gert út marga báta í gegnum tíðina og alla á netum og allir hafa verið rauðir. Þar sem Valdimar GK var alla sína tíð línubátur þurfti að breyta bátnum töluvert mikið til þess að hægt væri að stunda netaveiðar á honum. Núna er báturinn sem sé kominn í slipp í Njarðvík og verður forvitnilegt að sjá hvort báturinn komi úr slippnum blár eða þá rauður, en það er liturinn sem Hólmgrímur heldur mikið upp á bátana sína og Sigvaldi er svo til sammála honum því að hann segir að báturinn yrði fallegur rauður.
Og já, ég er eiginlega sammála honum, held að Grímsi GK verði fallegur rauður á litinn.







