Pistlar

Svakaleg bátasúpa í Sandgerði
En það eru ekki allir bátar á strandveiðum því að einn bátur er á færaveiðum því að sá bátur er með kvóta. Og það er Dóra Sæm HF sem rær frá Sandgerði. Dóra Sæm HF rær út þá daga sem strandveiðibátarnir mega ekki róa, til dæmis á föstudögum og um helgar.
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
þriðjudaginn 19. maí 2026 kl. 14:23

Svakaleg bátasúpa í Sandgerði

Maí mánuður hálfnaður og síðast þegar ég skrifaði pistil þá var vetrarvertíðin að klárast og núna þegar þessi pistill er skrifaður er sveitastjórnarkosningum árið 2026 lokið. Ég ætla nú ekkert að skrifa um það hérna í þessum pistli, ekki nema eitthvað af því tengist sjómennsku.

Allavega, strandveiðin er komin á fullt og þó svo að fyrstu tvær vikurnar hafi verið vægast sagt mjög erfiðar gagnvart sjósókn strandveiðibátanna þá er þessi dagur, sem þessi pistill er skrifaður, mjög góður og heldur betur er mikið um að vera í Sandgerði því að yfir 50 strandveiðibátar eru að landa á einum degi í Sandgerði plús dragnót og línubátinn Margréti GK.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Þó svo að vertíðin sé búin þá eru ennþá nokkrir netabátar á veiðum og sem fyrr eru þeir allir að landa í Keflavík og stóru bátarnir Erling KE og Grímsi GK landa í Njarðvík. Erling KE hefur reyndar aðeins farið í tvo róðra í maí og landað 35 tonnum, og Grímsi GK er kominn með 88 tonn í sautján róðrum.

Halldór Afi KE er kominn með 44 tonn í tólf róðrum og mest 8 tonn. Addi Afi GK 30 tonn í ellefu róðrum og mest 5,3 tonn. Emma Rós KE 36 tonn í ellefu róðrum og mest 9,3 tonn. Sunna Líf GK 32 tonn í tólf róðrum og mest 5 tonn. Elley GK 17 tonn í tíu róðrum.

Núna eru mjög margir línubátar farnir í burtu af svæðinu en eftir stendur Margrét GK sem rær frá Sandgerði og hefur báturinn landað 73 tonnum í sjö róðrum. Töluvert af dragnótabátum er í Sandgerði og tveir bátanna skera sig nokkuð úr frá hinum. Aðalbjörg RE sem hefur landað 141 tonni í níu róðrum og mest 27 tonnum og Sigurfari GK sem er með 166 tonn í aðeins fjórum róðrum og mest tæp 58 tonn í einni löndun.

Sigurfari GK hefur verið við veiðar á svæði frá Vík í Mýrdal og austur að Gígjukvísl, og uppistaðan í þessum afla hjá bátnum er ýsa eða 88 tonn.

Í Grindavík er ekki eins mikið um strandveiðibáta og einn af þeim sem byrjuðu róðra þar fór í ansi langt ferðalag því Hafdalur GK byrjaði í Grindavík og fór síðan alla leið til Hornafjarðar en Hornafjörður er hluti af svæði D. Í Grindavík landaði Hafdalur GK 2,9 tonnum í fimm róðrum og á Hornafirði hefur báturinn landað 2 tonnum í þremur róðrum.

Fyrst ég er byrjaður á tölum um strandveiðibáta þá lítum á nokkra aðra. Hrappur GK er með 3,5 tonn í fimm. Jónea GK 2,9 tonn í fjórum. Grindjáni GK 3,7 tonn í fimm og Ólafur GK 4,4 tonn í sex róðrum og mest 1,1 tonn. Allir í Grindavík. Í Keflavík er t.d. Ósk KE með 2,9 tonn í fjórum og Kristín GK með 1,9 tonn í fjórum róðrum.

Svakaleg bátasúpa er í Sandgerði og lítum á nokkra. Sigurörn GK er með 3,9 tonn í fimm. Hawkerinn GK 3,6 tonn, Sóli GK 3,4 tonn allir í fimm róðrum, Sella GK 3,2 tonn í fjórum, Dímon GK 3,3 tonn í fimm. Óskar KE 2,9 tonn í þremur. Hólmsteinn GK 2,9 tonn í fjórum.

En það eru ekki allir bátar á strandveiðum því að einn bátur er á færaveiðum því að sá bátur er með kvóta. Og það er Dóra Sæm HF sem rær frá Sandgerði. Dóra Sæm HF rær út þá daga sem strandveiðibátarnir mega ekki róa, til dæmis á föstudögum og um helgar. Hefur Dóra Sæm HF landað um 6,4 tonnum í sex róðrum og mest 1,8 tonnum.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar