Blendnar tilfinningar en þetta er komið gott
Kjartan Már Kjartansson hefur stýrt Reykjanesbæ sem bæjarstjóri í tæp tólf ár, eða í gegnum þrjú kjörtímabil. Hann tók við starfinu á krefjandi tímum árið 2014 þegar fjárhagur sveitarfélagsins var í járnum og hefur síðan þá siglt bænum í gegnum gríðarlega íbúafjölgun, heimsfaraldur og náttúruhamfarir í nágrenninu.
Í einlægu viðtali við Pál Ketilsson ræðir Kjartan starfið, áskoranirnar, pólitíkina og baráttuna við krabbamein sem breytti lífssýn hans.
Viðtalið má einnig lesa í rafrænni útgáfu Víkurfrétta.

