Fréttir

Magnús Stefánsson lætur af störfum sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Þriðjudagur 19. maí 2026 kl. 09:51

Magnús Stefánsson lætur af störfum sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar

Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, mun láta af störfum um næstu mánaðamót eftir um 14 ára starf í þágu sveitarfélagsins. Magnús greindi frá þessu í stöðufærslu á samfélagsmiðlum í morgun.

Ráðningartíma Magnúsar lýkur á sama tíma og núverandi bæjarstjórn skilar umboði sínu til nýkjörinnar bæjarstjórnar um mánaðamótin. Magnús hefur stýrt sveitarfélaginu um 14 ára skeið, fyrst sem bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Garði og síðar í Suðurnesjabæ eftir sameiningu Garðs og Sandgerðis árið 2018.

Aðalbros
Aðalbros
Óskar nýrri bæjarstjórn velfarnaðar

Í færslu sinni óskaði Magnús nýkjörnum bæjarfulltrúum til hamingju með kjörið og bauð þá velkomna til starfa. Hann sagði verkefnin framundan vera spennandi en jafnframt krefjandi.

„Framundan eru spennandi en jafnframt krefjandi verkefni sem bíða úrlausnar og vonandi gengur sem allra best að vinna úr þeim í þágu samfélagsins.“

Hrósar starfsfólki sveitarfélagsins

Magnús lagði ríka áherslu á að ný bæjarstjórn væri lánsöm að fá að vinna með því öfluga starfsfólki sem starfar hjá Suðurnesjabæ. Hann hrósaði starfsfólkinu fyrir fagmennsku, alúð og trúnað í sínum störfum, sem hafi tryggt íbúum góða þjónustu.

Að lokum sagði Magnús að nýjar áskoranir og ævintýri biðu sín þegar hann kveður embættið, „hvert sem spor mín munu liggja.“

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar