Þreifingar milli D og S í Suðurnesjabæ
Þreifingar eru í gangi milli D-lista og háðra og Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ um myndun meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Þetta hafa Víkurfréttir eftir nokkrum heimildum.
Svavar Grétarsson, oddviti Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ hafði þetta að segja: „Af meirihlutaviðræðum eru engar fréttir aðrar en bara óformleg samtöl. Vikan leiðir eitthvað meira í ljós.“
Samfylkingin fékk þrjá bæjarfulltrúa og D-listinn tvo bæjarfulltrúa í kosningunum á laugardag. Önnur framboð, Framsókn og óháðir og Miðflokkurinn, fengu einnig tvo fulltrúa hvort.







