Rétt helmingur kaus í Reykjanesbæ
Kjörsókn í Reykjanesbæ var 51,6% og er áberandi minnst þar af fjórum sveitarfélögum á Suðurnesjum. Mest kjörsókn var í Grindavík, 75,42%.
Í Suðurnesjabæ var kjörsóknin 63,5% og í Sveitarfélaginu Vogum var hún 59,3%.
Sé þessum tölum snúið við má segja að 48,4% hafi ekki notað kosningarétt sinn í Reykjanesbæ, þ.e. rétt tæpur helmingur kjósenda sat heima. Skýringar liggja helst í því að um þriðjungur fólks á kjörskrá í Reykjanesbæ eru útlendingar og erfiðlega hefur gengið að fá þá til að nýta kosningarétt sinn í sveitarstjórnarkosningum.
Í Reykjanesbæ hefur verið gert átak til að hvetja útlendinga til þátttöku og m.a. var haldinn sérstakur framboðsfundur á ensku í aðdraganda kosninga.






