Fréttir

Jóna Björg 96 ára hefur kosið í öllum kosningum frá árinu 1950
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 17. maí 2026 kl. 11:19

Jóna Björg 96 ára hefur kosið í öllum kosningum frá árinu 1950

Einn elsti kjósandinn í þessum sveitarstjórnarkosningunum í ár, Jóna Björg Georgsdóttir frá Brekku í Ytri Njarðvík mætti á kjörstað með barnabarni sínu í Fjölbrautaskóla Suðurnesja á kosningadaginn. Jóna Björg sem er 96 ára hefur kosið í öllum sveitarstjórnarkosningum frá árinu 1950 en þá var hún tvítug.

Með Jónu Björgu var Hildigunnur Eir Kristjánsdóttir, 18 ára sonardóttir hennar en Hildigunnur var ekki bara að kjósa í fyrsta sinn heldur var hún líka á framboðslista Viðreisnar í Reykjanesbæ og hefur líklega fengið atkvæði frá ömmu sinni.

Aðalbros
Aðalbros
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar