Ásrún ætlar að ræða við Sjálfstæðisflokk um meirihlutasamstarf
Ásrún Helga Kristinsdóttir, oddviti Framsóknarflokks í Grindavík, sagði á RÚV líklegt að hún muni heyra í Sjálfstæðisflokknum varðandi myndun nýs meirihluta í Grindavík. Framsóknarflokkur fékk þrjá bæjarfulltrúa, Sjálfstæðisflokkur hlaut einnig þrjá fulltrúa og Miðflokkur einn.
Á kjörskrá í Grindavík voru 1117, talin atkvæði voru 842. Auðir kjörseðlar voru fjórir og einn var ógildur.
Atkvæði skiptust svo:
B listi – Framsóknarflokkurinn: 367
D listi – Sjálfstæðisflokkurinn: 351
M listi – Miðflokkurinn: 119
Bæjarstjórn Grindavíkur er skipuð eftirtöldum:
Ásrún Helga Kristinsdóttir
Þorleifur Ólafsson
Inga Fanney Rúnarsdóttir
Guðbjörg Eyjólfsdóttir
Hjálmar Hallgrímsson
Ómar Davíð Ólafsson
Magnús Már Jakobsson






