Vor á Vatnsnesi
„Í tilefni 40 ára afmælis Hótel Keflavíkur þann 17. maí bjóðum við bæjarbúa og gesti hjartanlega velkomna á glæsilega afmælishátíð dagana 15.–17. maí. Aðalviðburður hátíðarinnar verða laugardaginn 16. maí svo passaðu að taka daginn frá. Framundan er lífleg og fjölbreytt helgi þar sem skemmtihlaup, list, tónlist og einstakar upplifanir mætast í skemmtilegri stemningu fyrir alla fjölskylduna,“ segir í tilkynningu um viðburðinn.
Þá segir: Vor á Vatnsnesi er nýr árlegur viðburður í Reykjanesbæ – notaleg bæjarhátíð sem við ætlum að byggja upp til framtíðar. Í ár gerum við þó sérstaklega vel við okkur og fögnum 40 ára afmælinu okkar með enn veglegri dagskrá. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og höfum gaman saman!
Það er frítt inn fyrir alla - Verið velkomin á Vatnsnes.
Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar







