Enduropnun Sambíóanna í Keflavík til skoðunar
- Húsfyllir á 1. maí snerti gamla taug
Kvikmyndaunnendur á Suðurnesjum eiga ef til vill von á góðu, en mikill áhugi er á því að glæða Sambíóin í Keflavík aftur lífi. Í samtali við Víkurfréttir segir Björn Ásberg hjá Sambíóunum að hugmyndin hafi kviknað fyrir alvöru á dögunum eftir vel heppnaða sýningu í húsinu á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Kvikmyndahúsið við Hafnargötuna lokaði síðla árs 2024 og hafði þá glímt við erfiðleika í kjölfar bæði Covid-faraldurs og verkfalls í kvikmyndaframleiðslu í Hollywood.
„Þetta snerti gamla taug þegar við héldum sýningu 1. maí fyrir fullum sal af börnum,“ segir Björn í samtali við Víkurfréttir. „Það var náttúrulega kjaftshögg á sínum tíma þegar við þurftum að loka, en mann hefur lengi dreymt um að opna aftur. Það er gott að vita af því að það sé svona mikið bakland í samfélaginu.“
Sú hvatning sem Björn vísar til er sýnileg. Rúmlega 2.400 manns hafa þegar skrifað undir áskorun þess efnis að fá bíóið aftur í bæinn, auk þess sem myndband á samfélagsmiðlinum TikTok hefur fengið yfir 25 þúsund áhorf.
Að sögn Björns er bíósókn í landinu almennt aðeins að mjakast upp á við eftir erfið ár sem lituðust ekki bara af faraldrinum heldur einnig af löngu verkfalli í Hollywood. Prógrammið fyrir árin 2026 og 2027 lítur hins vegar mjög þétt og vel út. Ef af opnun verður, segir Björn að stefnt sé á að hafa opið sjö daga vikunnar: „Það þýðir ekkert annað en að fólk geti gengið að því vísu.“
Þurfa hjálparhönd í startið
Þótt áhuginn sé til staðar er ljóst að húsnæðið þarfnast ástar og umhyggju, jafnt að utan sem innan. Björn leggur áherslu á að Sambíóin þurfi smá liðsinni og samfélagslegan stuðning til þess að hægt sé að ýta verkefninu úr vör. Meðal þeirra sem hafa sýnt málinu mikinn áhuga og vilja rétta fram hjálparhönd eru heimamenn í Sjálfstæðisflokknum, en ekkert er þó fast í hendi enn sem komið er. Björn segir að eftir jákvæðan fund með sjálfstæðismönnum í Reykjanesbæ hafi Sambíóin haft frumkvæði af því að setja í gang undirskriftasöfnun til að kanna áhuga heimafólks fyrir hugmyndinni.
„Þeir sýndu þessu mikinn áhuga og vilja gera það sem þeir geta, en það er náttúrulega ekki búið að semja um neitt,“ útskýrir Björn og bætir við að bíó myndi passa einstaklega vel inn í hugmyndir um að glæða miðbæjarkjarnann í Keflavík frekara lífi.
Meira en bara bíó?
Formið á endurvöktu kvikmyndahúsi við Hafnargötu gæti líka orðið fjölbreyttara en áður var. Björn nefnir Bæjarbíó í Hafnarfirði sem dæmi um hvernig hægt er að nýta slík hús undir almenna menningarstarfsemi og viðburði, fremur en eingöngu hefðbundnar kvikmyndasýningar.
„Það er náttúrulega tíminn sem verður að leiða það í ljós, en fyrsta skrefið er að fá þessa hjálparhönd til að koma þessu af stað,“ segir Björn að lokum.







