Lýðheilsuráð hvetur nýja bæjarstjórn til áframhaldandi starfa
Á 68. fundi lýðheilsuráðs Reykjanesbæjar var lögð fram áskorun til nýrrar bæjarstjórnar um mikilvægi þess að ráðið starfi áfram á næsta kjörtímabili. Meirihluti ráðsins lagði fram bókun þar sem lögð er áhersla á það lykilhlutverk sem ráðið hefur gegnt við að efla heilsu og vellíðan íbúa með forvörnum og heilsueflingu.
Í störfum ráðsins á liðnum árum hefur verið lögð sérstök áhersla á málefni barna og ungmenna, geðheilsu og starfsemi félagsmiðstöðva. Ráðið hefur verið virkur vettvangur fyrir samstarf sveitarfélagsins við skóla, heilbrigðisþjónustu og íþróttafélög, auk þess að standa að vinsælum samfélagsverkefnum á borð við Skessuskokk og Lífshlaupið. Telur meirihlutinn mikilvægt að málefni forvarna og félagsmiðstöðva heyri áfram undir ráðið til að tryggja farsæld íbúa.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagði fram gagnbókun þar sem fram kemur að flokkurinn telji mikilvægt að lýðheilsuverkefni séu skýr og markviss innan stjórnsýslunnar. Fram kemur í bókuninni að verði ráðið lagt niður muni verkefnum þess áfram vera sinnt en þau færð undir önnur svið eða nefndir. Markmiðið sé að tryggja skilvirkni og forðast óþarfa flækjustig í stjórnsýslunni, enda verði lýðheilsa ekki efld með fjölgun nefnda.








