Framsókn - 16. maí
Framsókn - 16. maí

Aðsent

Gott samfélag mótast ekki af tilviljunum
Miðvikudagur 13. maí 2026 kl. 15:42

Gott samfélag mótast ekki af tilviljunum

Sveitarfélagið Vogar stendur á tímamótum. Á kjörtímabilinu hefur íbúum fjölgað um 45% og ljóst er að sífellt fleiri sjá Vogana sem eftirsóknarverðan stað til búsetu. Slík þróun skapar bæði tækifæri en kallar um leið á ábyrgð. Það er nefnilega ekki nóg að byggja fleiri íbúðir, við þurfum líka að byggja áfram gott samfélag þar sem bæjarbragur, þjónusta og lífsgæði haldast í hendur við vöxtinn.

Sterkur bæjarbragur verður ekki til af tilviljun. Hann byggir á því hvernig við skipuleggjum samfélagið okkar, hvernig við tengjum saman skóla, íþróttir, útivist, verslun og samveru fólks. Þar skipta innviðirnir öllu máli.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Stækkun Stóru-Vogaskóla er eitt mikilvægasta verkefnið framundan. Þar þarf að horfa til framtíðar, ekki bara næstu ára heldur næstu áratuga. Mikilvægt er að framkvæmdir við skólalóð og útisvæði geti hafist samhliða uppbyggingunni svo aðstaðan verði tilbúin þegar nýtt húsnæði verður tekið í notkun. Skólinn er hjarta samfélagsins og metnaðarfullur skóli hefur bein áhrif á lífsgæði barna og fjölskyldna.

Sama á við um leikskólann. Strax í sumar verður ráðist í stækkun leikskólans svo að öll börn komist inn í haust. Einnig verður unnið að hönnun nýs leikskóla í Grænubyggð sem uppfyllir nútímakröfur um leik- og námsumhverfi barna og aðstöðu kennara. Það er mikilvægt að uppbygging innviða fylgi þeirri miklu fjölgun sem hefur orðið í sveitarfélaginu og mun að öllum líkindum halda áfram þar sem um 200 íbúðir eru annaðhvort tilbúnar eða í byggingu.

Til að þessi uppbygging sé möguleg þarf fjárhagslegur grunnur sveitarfélagsins að vera sterkur og þar standa Vogar vel. Þetta gefur okkur svigrúm til að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir af ábyrgð og með langtímahugsun að leiðarljósi.

Eitt mikilvægasta skipulagsmál næstu ára verður þó þróun miðbæjarsvæðisins. Þar felast mikil tækifæri til að skapa sterkari bæjarbrag og meira mannlíf. Miðbæjarkjarninn verður við Hafnargötu þar sem fyrir er, tjaldsvæði, íþróttasvæði, skrúðgarður, skólinn og hafnarsvæðið. Nokkurskonar lífæð bæjarins sem tengir mikilvægar starfsstöðvar og áningastaði. Með markvissri uppbyggingu getum við skapað miðbæjarkjarna sem þjónar íbúum betur og gerir Vogana enn meira aðlaðandi sem samfélag.

Ef við náum að gera þetta rétt, þá byrjar barn í skóla í Vogunum og elst upp í bæ sem hefur skýra framtíðarsýn. Það mun fara í skóla sem var byggður með þarfir þess í huga, leika sér á svæðum sem eru hönnuð fyrir börn og fjölskyldur og einn daginn velja að stofna sína eigin fjölskyldu hér í Vogunum. Það er kjarni ábyrgrar sveitarstjórnar, ekki aðeins að stýra vexti heldur móta til framtíðar.

Mig hefur lengi dreymt um að sjá enn sterkari bæjarbrag þróast í Vogunum, samfélag þar sem fólk hittist oftar, mannlíf blómstrar og menning verður til á eðlilegan hátt í daglegu lífi. Miðbær, hafnarsvæði og sameiginleg útisvæði eiga ekki bara að vera staðir sem fólk fer í gegnum heldur staðir þar sem fólk stoppar, hittist og skapar samfélag saman.

Góð skipulagsmál snúast ekki um að byggja sem mest heldur að byggja rétt. Ef okkur tekst að halda áfram uppbyggingu með skynsemi, ábyrgð og skýra framtíðarsýn getum við tryggt að Vogar verði áfram barnvænt, samheldið og lifandi samfélag þar sem gott er að búa, bæði fyrir núverandi og komandi kynslóðir.

Friðrik Valdimar Árnason skipar 3. sæti E-listans

Bæjarfulltrúi og situr í skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar