Ekkert barn má detta á milli kerfa
Börn með fötlun og fjölskyldur þeirra eiga rétt á skilvirkri þjónustu sem virkar og vel er haldið utan um en ekki þjónustu sem er brotakennd og flókin. Raunin er sú að of mörg börn detta á milli kerfa þar sem ábyrgð er dreifð, samvinna óskýr og viðbrögð of sein.
Fötluð börn eiga að njóta fyllstu mannréttinda enda kveða lög um farsæld barna (nr. 86/2021) skýrt á um að þjónusta við börn eigi að vera samþætt, samfelld og byggð á snemmtækri íhlutun. Það þýðir að kerfin eiga að vinna saman en ekki sitt í hvoru lagi. Framsókn leggur því áherslu á að sameina mennta- og velferðarsvið undir eitt svið. Með því er verið að færa ábyrgð, yfirsýn og ákvarðanatöku nær barninu sjálfu og tryggja að þjónustan verði markvissari, skilvirkari og mannlegri. Slíkt ætti að leiða til þess að enn betur verði tekið utan um börn um leið og grunur vaknar um þroskafrávik og unnið með fjölskyldur að markvissum og heildrænum stuðningi.
Lykilatriði í þessari sýn er að lækka þjónustuþröskuld fyrir fjölskyldur. Þess vegna leggur Framsókn til að skólafélagsráðgjafar starfi í öllum grunnskólum. Skólinn er daglegt umhverfi barnsins og þar á stuðningurinn að vera aðgengilegur. Með þessu er hægt að grípa fyrr inn í, styðja foreldra beint og tengja saman skóla og félagsþjónustu á skilvirkari hátt.
Einnig viljum við efla úrræði skammtímavistunar, úrræði sem mikil þörf er á fyrir börn og foreldra langveikra barna sem og frístundaúrræði fyrir fötluð börn á yngsta stigi grunnskóla bæði eftir skólatíma og yfir sumartímann. Slíkur stuðningur er forsenda þess að fjölskyldur haldi jafnvægi og börn geti tekið fullan þátt í skólastarfi og samfélagi.
Við viljum auka þjónusta við fötluð börn og ungmenni nái til 18 ára aldurs. Stuðningur má ekki rofna á viðkvæmum mótunarárum, heldur þarf að vera samfella sem styður við nám eða atvinnu, félagslega þátttöku og undirbúning fyrir lífið. Slík nálgun dregur úr líkum á brotthvarfi, félagslegri einangrun og auknum vanda síðar meir.
Sterkt samfélag byggir á því hvernig við styðjum við þau sem mest þurfa á því að halda. Með samþættri þjónustu, snemmtækri íhlutun og markvissum stuðningi tryggjum við að engin börn detti á milli kerfa og fái tækifæri til að blómstra og skapa sér bjarta framtíð.
Birna Ósk Óskarsdóttir,
aðstoðarskólastjóri, frambjóðandi Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,
leik- og grunnskólakennari, frambjóðandi Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar





