Sjáðu turninn falla frá nokkrum sjónarhornum
Víkurfréttir voru með myndavélar á þremur sjónarhornum þegar turn kísilversins í Helguvík var felldur í morgun. Það þurfti nokkrar tilraunir til að fella turninn sem vegur nokkur hundruð tonn en inni í turninum voru stór og mikil síló. Úr þeim kom allt þetta gráa ryk þegar turninn féll til jarðar.
Myndskeiðið er í spilaranum hér að ofan en fallinu fylgdi töluverður hávaði sem heyra má í upptökunni. Þá nötraði jörð í Helguvík án þess þó að koma fram á skjálftamælum en jarðskjálftamælir er staðsettur á svæðinu.

