Höfnin stendur sterkum fótum inn í framtíðina
Á dögunum var samþykkt ný framtíðarsýn Reykjaneshafnar til ársins 2035. Þetta er í þriðja sinn sem Atvinnu- og hafnaráð Reykjanesbæjar, sem jafnframt er stjórn Reykjaneshafnar, gefur út framtíðarsýn í lok kjörtímabils til að skila sinni vinnu og sýn til nýrrar stjórnar sem tekur við að kosningum loknum.
Það sem þessi vinna hefur skilað okkur á undanförnum árum er markviss sókn í uppbyggingu hafnarmannvirkja Reykjaneshafnar.
Helguvíkurhöfn
Í vetur var undirritað samkomulag að uppbyggingu 400 metra viðlegukannts og tanka fyrir skipaolíu sem Mannvirkjasjóður NATO kostar að fullu og skapar enn frekari tækifæri til fraktflutninga, sem hefur verið sterkasta tekjustoð okkar.
Grófin
Með fyrirhugaðri íbúðabyggð upp að Grófinni verður smábátahöfnin að frábærri perlu sem sameinar útivist og skemmtibáta í spennandi kjarna sem mun tengjast nýjum miðbæjarkjarna á Duus reitnum.
Keflavíkurhöfn
Á þessu ári eru a.m.k. 5 komur skemmtiferðaskipa áætlaðar og sú fyrsta í lok maí. Markmið okkar er að taka á móti í það minnsta 30 skipum á hverju ári sem fyllir miðbæinn okkar af lífi og býr til enn frekari rekstrargrundvöll fyrir veitingahús, smásölu og ekki síst ferðaþjónustu svo eitthvað sé nefnt.
Njarðvíkurhöfn
Í Njarðvíkurhöfn eru spennandi tækifæri í skipaþjónustu, verslun og almennri þjónustu umhverfis Njarðvíkurhöfn svo ekki sé minnst á Landhelgisgæsluna sem við horfum enn til að verði með sinn skipastól í Njarðvík.
Við höfum þegar lokið við dýpkun hafnarinnar og í haust verður uppbyggingu lokið á nýjum grjótvarnargarði sem gerir Njarðvíkurhöfn að einni mestu lífhöfn landsins. Það þýðir að hægt verði að lenda í höfninni í öllum veðrum við öruggar aðstæður.
Samhliða þessari uppbyggingu höfum við lagt til við skipulagsyfirvöld Reykjanesbæjar að horft verði til allt að 8 hektara landfyllingu á svæðinu sem býr til gríðarmikil tækifæri fyrir áframhaldandi uppbyggingu fyrir hafnsækna starfsemi í miðjum bænum okkar.
Atvinnustefna
Árið 2024 gaf Atvinnu- og hafnaráð frá sér Atvinnustefnu Reykjanesbæjar sem var að öllu leyti unnin af kjörnum fulltrúum og horfir til þeirra stoða sem atvinnulífið okkar reiðir hvað mest á. Lóðrétt ræktun, gagnaver og ferðaþjónustan svo á eitthvað sé minnst.
Fjárhagsstaða
Undirritaður hefur setið nær óslitið í Atvinnu- og hafnaráði frá árinu 2009 og lengi vel var fjárhagsstaða hafnarinnar afar bágborin og til margra ára þurfti Reykjaneshöfn að taka lán til að fjármagna vaxtaafborganir af lánum sínum því ekki var fjárhagslegt bolmagn til að greiða af lánum.
Nú er hins vegar öldin önnur. Skuldastaða félagsins er farin úr 9 milljörðum í 1 milljarð og greiðum við af öllum okkar skuldum.
Án þess að fara mörgum orðum um fjárhagsstöðuna þá vil ég þó segja að á síðasta ári var hagnaður ársins 88,8 milljónir, jákvætt eigið fé 1.452 milljónir og jákvætt eiginfjárhlutfall upp á 53,6%.
Veltufjármunir félagsins voru í árslok 244,4 milljónir og veltufjárhlutfallið 3,26. Handbært fé frá rekstri á árinu var jákvætt um 193,6 milljónir króna.
Að lokum
Framundan eru afar spennandi tímar með uppbyggingu í öllum okkar höfnum og nýrri Atvinnustefnu. Algjör viðsnúningur í rekstri er fagnaðarefni og ég mæli eindregið með því að íbúar kynni sér betur sögu hafnarinnar, hvert við erum komin og hvert við stefnum.
Hjörtur M Guðbjartsson
2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ
Bæjarfulltrúi og formaður Atvinnu- og hafnaráðs






