Þriðjudagur 5. maí 2026 kl. 08:34

Markvissari vinnu við að fjölga atvinnutækifærum

Arnar Páll Guðmundsson leiðir nýjan lista Viðreisnar í Reykjanesbæ í kosningunum í vor. Hann boðar ferska vinda í bæjarpólitíkina og leggur áherslu á að nýta meðbyr flokksins á landsvísu til að hafa áhrif á heimavelli. Hann vill sjá skilvirkari stjórnsýslu, aukna áherslu á velferðarmál og faglega ráðinn bæjarstjóra sem starfar þvert á flokka.

Arnar Páll er 39 ára Reykjanesbæingur í húð og hár. Hann hefur verið ötull í starfi Viðreisnar frá stofnun flokksins og segist stoltur af því að leiða lista sem er skipaður fólki með fjölbreyttan bakgrunn. „Meðalaldurinn á listanum er um 35 til 40 ár. Þetta er nýtt fólk sem vill láta til sín taka í samfélaginu og kemur með nýja sýn á hlutina,“ segir Arnar Páll.

Viðtalið er í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Arnar Páll Guðmundsson leiðir nýjan lista Viðreisnar í Reykjanesbæ í kosningunum í vor. Hann boðar ferska vinda í bæjarpólitíkina og leggur áherslu á að nýta meðbyr flokksins á landsvísu til að hafa áhrif á heimavelli. Hann vill sjá skilvirkari stjórnsýslu, aukna áherslu á velferðarmál og faglega ráðinn bæjarstjóra sem starfar þvert á flokka.

Arnar Páll er 39 ára Reykjanesbæingur í húð og hár. Hann hefur verið ötull í starfi Viðreisnar frá stofnun flokksins og segist stoltur af því að leiða lista sem er skipaður fólki með fjölbreyttan bakgrunn. „Meðalaldurinn á listanum er um 35 til 40 ár. Þetta er nýtt fólk sem vill láta til sín taka í samfélaginu og kemur með nýja sýn á hlutina,“ segir Arnar Páll.

Viðreisn og arfleifð Beinnar leiðar

Nú hefur Bein leið verið við stjórnvölinn í þrjú kjörtímabil. Er Viðreisn hreinlega framhald af því samstarfi eða er þetta nýr kafli?

„Nei, Bein leið rann ekki inn í framboðið okkar. Það var hugmynd árið 2022 að skoða sameiginlegt framboð en það gekk ekki eftir á þeim tímapunkti. Viðreisn hefur verið öflugur talsmaður fyrir frjálslyndi í samfélaginu og okkur fannst tími kominn á að flokkurinn færi fram undir eigin merkjum í Reykjanesbæ. Við erum opinn flokkur og bjóðum okkar eigin stefnu.“

Velferð og vaxtarverkir: „Lofum ekki því sem er ekki ábyrgt“

Arnar Páll ræðir mikið um þá gríðarlegu fólksfjölgun sem verið hefur í bænum, en sveitarfélagið hefur stækkað um 64% á rúmum áratug. Hann segir þennan öra vöxt hafa skapað mikla vaxtarverki, sérstaklega í leikskóla- og menntamálum.

Leikskólamálin hafa verið í brennidepli. Hver er ykkar áhersla þar, sérstaklega varðandi aldur barna við innritun?

„Við viljum að sjálfsögðu að leikskólapláss taki beint við af fæðingarorlofi, sem eru 12 mánuðir. En við viljum vera heiðarleg og ekki lofa einhverju sem er ekki ábyrgt. Staðan í dag er sú að 18 mánaða börn komast inn í haust. Við þurfum að vera með raunhæfa áætlun um hvernig við náum niður í 12 mánuði án þess að mönnunarvandi sligi kerfið. Við þurfum að fá alla að borðinu, efla starfsumhverfið og laða að leikskólakennara.“

Þið talið líka um að fækka nemendum í bekkjum í grunnskólum?

„Álagið á kennarana okkar er orðið rosalega mikið, stundum með allt að 30 börn í bekk. Með því að fækka í bekkjum bætum við námsárangur og vinnuaðstöðu. Já, það þýðir fleiri bekki og meiri kostnað, en við teljum að það megi mæta því með því að taka til í stjórnsýslunni og forgangsraða fjármunum í þágu mannauðsins frekar en steypu.“

Fjölga atvinnutækifærum

Arnar Páll vill sjá markvissari vinnu við að fjölga atvinnutækifærum og minnka háð svæðisins við flugvöllinn. Hann leggur áherslu á svokallaðan „viðbragðsflýti stjórnsýslunnar“.

Hvernig getur bæjarfélagið stutt betur við nýsköpun og stærri verkefni frá fyrirtækjum eins og landeldi eða hóteluppbyggingu sem eru þegar á borðinu?

„Við höfum verið mjög háð flugvallarþjónustu sem er sveiflukennd. Landeldið og önnur nýsköpun skilar heilsársstörfum og hærra útsvari sem skiptir máli fyrir tekjur bæjarins. Við viljum byggja þetta upp með fyrirtækjunum, skoða fasteignaskatta og lóðaleigu og einfalda alla ferla. Í samtölum við atvinnurekendur heyrum við að viðbragðstími leyfisveitinga og lóðaveitinga sé of langur – og tími er peningar. Við viljum innleiða „eina snertingu“ innan stjórnsýslunnar til að gera ferlið skilvirkara og gera okkur samkeppnishæfari.“

Ábyrgari kostnaðaráætlanir

Varðandi rekstur bæjarins bendir Arnar Páll á að þótt tekjustreymið sé gott hafi Reykjanesbær nú þurft að fara í lántökur vegna mikilla framkvæmda. Hann vill sjá aukinn aga í kostnaðaráætlunum.

Hvað með skipulagsmál og lóðir? Á bæjarfélagið að stýra því hvað er byggt?

„Við viljum láta markaðinn ráða för að miklu leyti. Það eru t.d. lausar lóðir í Ásahverfi fyrir stærri einbýli sem hafa ekki farið, svo það er spurning hvar þörfin liggur. Við þurfum líka að horfa til fyrstu kaupenda og byggja litlar og meðalstórar íbúðir. Jafnframt viljum við gera gangskör í að auka búsetuúrræði fyrir fatlað fólk. Þetta er hópur sem hefur verið út undan og þarf fjölbreyttari úrræði.“

Sameining og stóra myndin

Er sameining sveitarfélaga á Suðurnesjum eitthvað sem Viðreisn styður?

„Já, alveg klárlega. Þetta er framtíðin. Sameinuð erum við miklu sterkari og Suðurnesin eru í raun eitt atvinnusvæði í dag. Við sjáum hvernig Suðurnesjabær hefur blómstrað eftir sameiningu og við eigum að horfa til svipaðra gilda. Reykjanesbær og Vogar eru t.d. nánast vaxin saman og það væri mikil hagræðing í því að reka þessi sveitarfélög sem eina heild.“

Faglegur bæjarstjóri og samstarf

Arnar Páll segir Viðreisn geta unnið með öllum flokkum og leggur áherslu á að stefnumál ráði för frekar en flokkadrættir.

Þú segist vilja faglega ráðinn bæjarstjóra. Af hverju er það betra en pólitískur bæjarstjóri?

„Við viljum halda áfram með faglega ráðinn bæjarstjóra, eins og hefur verið gert síðustu 12 ár með Kjartan Má. Kosturinn er sá að hann er bæjarstjóri allrar bæjarstjórnarinnar, ekki bara meirihlutans, og hann er óháður flokkapólitík. Þótt ég muni ekki skorast undan ábyrgð ef til mín verður leitað, þá teljum við þetta farsælustu leiðina fyrir samfélagið.“

Hvernig er stemningin í hópnum nú þegar stutt er til kosninga?

„Stemningin er frábær. Við opnuðum kosningaskrifstofu okkar nýlega og finnum að fólk er áhugasamt um eitthvað nýtt. Þetta verður fjörugur og skemmtilegur tími fram að kosningum og við erum rosalega bjartsýn á að ná góðum árangri.“



Aukaspurningar úr prentútgáfu Víkurfrétta:

Langaði að taka þátt

Hver er Arnar Páll?

Arnar Páll er 39 ára Reykjanesbæingur, heimamaður. „Ég er búinn að vera hér alla mína tíð og hjartað mitt náttúrulega slær með Reykjanesbæ og mannlífinu hér. Ég er búinn að sjá bæinn minn þróast í þennan tíma og þá langar manninn svolítið að stíga inn á völlinn núna og taka þátt.

Fjórðung ævinnar í Viðreisn

Hvað kemur til að þú ákveður að skella þér í bæjarpólitík og hvernig stendur á því að þú endar sem oddviti Viðreisnar?

„Við náttúrulega erum búin að vera hérna með félag starfandi frá 2018. Ég er búinn að vera formaður Viðreisnar í Reykjanesbæ og formaður kjördæmisráðs flokksins. Svo bara þegar við fórum af stað núna í vor, þegar við ákváðum að breyta félaginu í Viðreisn á Suðurnesjum, komu áskoranir úr ýmsum áttum og ég ákvað að láta slag standa. Ég er búinn að vera í flokknum frá 2016 og ég er stundum að grínast með það að ég sé búinn að vera 25% ævi minnar í Viðreisn. Ég er bara mjög ánægður og stoltur af því að fá að leiða þennan góða lista sem við erum með. Við erum með framboðslista með nýju fólki og allir geta hoppað inn hvenær sem er. “

Ferskir vindar

Hvernig gekk að fá fólk til starfa og telja, til þess að taka sæti á listanum?

„Það gekk mjög vel. Samkvæmt skilaboðum frá uppstillingarnefndinni vildu fleiri taka þátt en komust fyrir á lista. Við finnum fyrir miklum meðbyr. Við erum með svona ferska vinda, við erum með fólk sem hefur ekki tekið þátt í pólitík áður. Við erum með mikla dreifni á okkar lista. Ég held að aldursdreifingin, eða meðalaldurinn á listanum, sé á milli 35 og 40 ára. Þetta er nýtt fólk sem vill láta til sín taka í samfélaginu. Það er margt búið að gera margt vel í Reykjanesbæ, en stundum þarf að endurskoða hlutina og koma með nýja sýn á ferska vinda sem við viljum gera.“