Aðsent

Keilisnes til framtíðar
Þriðjudagur 12. maí 2026 kl. 13:49

Keilisnes til framtíðar

Skortur á atvinnutækifærum hefur um skeið verið viðvarandi í Vogum. Ástæðurnar geta verið margar og mismunandi en nálægðin við önnur atvinnusvæði ef til vill sú sem helst mætti nefna ásamt lóða- og aðstöðuskorti. Eins og flestir vita helst velferð samfélagsins og íbúa þess í hendur við atvinnutækifæri og uppbyggingu fyrirtækja. Með aukinni verðmætasköpun og fleiri atvinnutækifærum í sveitarfélaginu opnast leiðir að bættri velferð íbúa.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur verið einhuga um að setja kraft í atvinnuuppbygginu í sveitarfélaginu. Leiðin að því markmiði er að nýta land í eigu sveitarfélagsins og setjast að samningaborðinu við ríkið varðandi Flekkuvíkurland. Málið er á frumstigi en sveitarfélagið hefur sett það á dagskrá með opnun á vef www.keilisnes.is til kynningar.  Það er skemmst frá því að segja að áhuginn er mikill og tækifærin mörg en við slíkar aðstæður er mikilvægt að vanda til verka.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Í Sveitarfélaginu Vogum er af nægu að taka í skipulögðum íbúðasvæðum og því lítil þörf á að bæta þar í eins og staðan er í dag. Hins vegar hefur gengið erfiðlega að efla atvinnuuppbyggingu í Vogum og finna til þess ákjósanleg svæði. Eins og einhverjir hafa ýjað að, þá er ekki verið að dusta rykið af gamalli hugmynd sem á rætur að rekja til þess tíma að Vatnsleysustrandhreppur var og hét, en sú hugmynd snérist um að byggja stórskipahöfn og álver í Flekkuvík. Núverandi hugmyndir snúa vissulega að þeim möguleika að höfn geti orðið að veruleika á Keilisnesi en álver er ekki á dagskrá.

Mikilvægt er að hafa í huga að frekari umræða og stefnumótun á eftir að eiga sér stað. Það verður gert með samráði og samtali við íbúa m.a. með íbúafundum. Íbúar munu alltaf hafa sterka rödd í verkefni sem þessu. Hugmyndir sem koma frá íbúum og hagsmunaaðilum eru lykillinn að því hverskonar tækifæri við viljum fá inn á slíkt atvinnusvæði.

Hafa ber í huga að hliðarverkefni verða til með verkefninu. Þar munu íbúar á Vatnsleysuströnd finna fyrir mesta ábatanum.

  • Möguleiki opnast á heitt og kalt vatn inn Vatnsleysuströnd
  • Viðhald og endurbygging Vatnsleysustrandarvegar verður að veruleika
  • Afhendingaröryggi raforku eflist, í formi jarðstrengs innan sveitarfélagsins

Það er því til mikils að vinna að þetta verkefni fari af stað þannig að innviðir sveitarfélagsins njóti góðs af. Ljóst er að auknar tekjur af fyrirtækjum opna möguleikann á sanngjarnari álögur á íbúa sveitarfélagsins.

E-listinn stendur heilshugar á bak við þessa vegferð og mun gera þetta eitt af sínum forgangsverkefnum á komandi kjörtímabili. 

Við óskum eftir ykkar stuðningi. Setjum X við E.

Birgir Örn Ólafsson skipar 1. sæti E-listans

Forseti bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Vogum

Ingþór Guðmundsson skipar 4. sæti E-listans

Varabæjarfulltrúi og aðalmaður í skipulagsnefnd í Sveitarfélaginu Vogum

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar