Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 6. maí 2026 kl. 18:18

Gamanóperan Gianni Schicchi staðfærð á Suðurnesin

Norðuróp, í samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, frumsýnir föstudaginn 15. maí næstkomandi gamanóperuna Gianni Schicchi eftir G. Puccini í Hljómahöllinni. Jóhann Smári Sævarsson, höfuðpaur Norðuróps, segir verkið hafa verið staðfært á Suðurnesin „korter í kreppu“ þar sem græðgi og ættarerjur eru í brennidepli.

„Síðast vorum við með stórtónleika og þá lofaði ég að næst kæmi ég með óperu,“ segir Jóhann Smári. Fyrir valinu varð þetta klukkustundarlanga stykki eftir Puccini, sem Jóhann hefur þýtt og staðfært á heimaslóðir.

Útgerðarkarlar og kúlulán

Sagan hverfist um ríkan útgerðar- og heildsölumann sem fellur frá. Ættingjarnir mæta til leiks, þykjast syrgja en bíða í raun eftir arfinum enda margir búnir að taka kúlulán út á væntanlega peninga. Þegar erfðaskráin finnst og í ljós kemur að þau fá ekki neitt, þarf að grípa til örþrifaráða.

Jóhann segir að fólk þurfi alls ekki að vera vanir óperugestir til að hafa gaman af sýningunni. „Það er vitnað í fólk hérna á Suðurnesjum og í aríunni hans Gissurar Páls talar hann um Ljósanóttina, eldfjöllin og Bláa lónið. Ég held að fólk eigi eftir að hlæja mikið að textunum.“

Blanda af atvinnufólki og upprennandi stjörnum

Sýningin er samstarfsverkefni óperustúdíós Norðuróps og Tónlistarskólans, en hún hefur stækkað í meðförum og telst nú fullvaxta atvinnusýning. Á sviðinu verður fjölbreyttur hópur af flottu fólki. Í aðalhlutverkum eru Gissur Páll Gissurarson og Kristinn Schram Reed en fleiri koma við sögu í þessari skemmtilegu útfærslu, m.a. Martyna Gezella, Jóhanna María Kristinsdóttir og Guðrún Hildur Jóhannsdóttir og fleiri.

Hljómsveitin er skipuð fagfólki úr Sinfóníuhljómsveit Íslands og kennurum við skólann, en konsertmeistari verður hin unga og efnilega Rosalie Methus úr Keflavík. „Hún er bara unglingur en hún leiðir hljómsveitina sem fyrsta fiðla,“ segir Jóhann stoltur.

Einungis þrjár sýningar

Sýningarnar verða aðeins þrjár, allar í Hljómahöllinni:

  • Föstudaginn 15. maí kl. 20:00 (Frumsýning)
  • Laugardaginn 16. maí kl. 16:00
  • Sunnudaginn 17. maí kl. 16:00

Jóhann hvetur Suðurnesjamenn til að láta þessa skemmtun ekki fram hjá sér fara. „Ég lofa góðri skemmtun, algjörlega 100%.“ Miðasala er á tix.is

Sjónvarp Víkurfrétta ræddi við Jóhann Smára og sönvarana Gissur Pál og Kristinn Schram.