Reykjanesbær á að vera með öflugt íþrótta- og menningarstarf
Enn og aftur ætla ég að vísa í vini mína „pottormana“ í heita pottinum sem mæta á kvöldin í Vatnaveröld. Það má sanni segja að þessir karlar eru einstakir hver á sinn ólíka hátt og koma þeir flestir ýmist frá Keflavík eða Njarðvík og sumir í marga ættliði, þarna eru þó nokkrir aðfluttir andskotar.
Karlarnir í pottinum eru með ólíkan bakgrunn, menntun, með mikla starfsreynslu og auðvitað sínar ólíku skoðanir eins og ég hef áður nefnt. Þeir hafa flestir góðan húmor og hafa gaman af því að segja sögur af ólíkum toga og kunna að skemmta sér þegar þannig liggur við. Þeir eru allir sammála því að sterkt atvinnulíf og góð menntun er kjarninn að því sem gerir bæjarfélag að góðum bæ til að búa í. Aðalmálið er, jú auðvitað, að þeir halda allir ýmist með Keflavík eða Njarðvík í boltanum. Pottormarnir eru allir sammála því að íþróttadeildir Njarðvíkur og Keflavíkur eiga að vera öflugar íþróttadeildir á landsvísu og stolt okkar sem hér búa.
Eins og karlarnir í heita pottinum þá leggur Miðflokkurinn leggur ríka áherslu á að Reykjanesbær á að vera leiðandi í íþrótta-, tómstunda- og menningarmálum á Íslandi. Ef við ætlum að byggja upp framtíðarbæ, sem laðar að fjölskyldur og ungt fólk, verðum við að hugsa stórt. Reykjanesbær þarf og á að vera íþróttabær með framúrskarandi aðstöðu, þá þarf að byggja upp íþróttamannvirki á heimsmælikvarða.
Á heimsmælikvarða, er það ekki svolítið mikið stórt og metnaðarfullt?
Nei, alls ekki. Við eigum að vinna með metnaði og hafa háleit markmið. Þá fyrst náum við árangri í því sem við ætlum okkur að gera.
Við erum með mjög gott dæmi eða viðmið hér við bæjardyrnar hjá okkur. Haukar í Hafnarfirði búa í dag yfir glæsilegu íþróttasvæði sem hefur verið byggt þar sem hægt er að spila landsleiki í handbolta og körfubolta í íþróttahúsinu. Íþróttasvæðið er á sama stað þar sem glæsileg aðstaða er fyrir knattspyrnu, svæði og aðstaða sem er alveg til fyrirmyndar. Ekki má gleyma því að í Hafnarfirði er FH líka með sitt svæði sem er u.þ.b. fimm kílómetra frá Haukasvæðinu og ekki er það af verri endanum. Ég er ekkert að fara að tala hér mikið um hvað þeir eru að gera góða hluti á Akureyri fyrir sitt íþóttafólk, en eins og flestir þekkja eru Þór og KA þar. Þegar íþróttamannvirki eru m.a. þannig byggð að þar er hægt að spila landsleiki þá eru þau á heimsmælikvarða að því leiti.
Við eigum Keflavík og Njarðvik. Hvað ætlum við að gera?
Góð aðstaða er ekki nóg ein og sér. Aðgengi skiptir sköpum. Það verður að tryggja að öll börn og ungmenni hafi raunverulegt tækifæri til að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi, óháð efnahag foreldra. Þátttaka í slíku starfi á ekki að vera lúxus, hún er mikilvægur hluti af þroska, sjálfsmynd og félagsfærni barna og unglinga.
Það þarf að efla hvatagreiðslur, án þess að það leiði til þess að æfingagjöld hækki. Samhliða því þarf að tryggja raunverulegan fjölskyldustuðning, þar sem systkinaafslættir og gjaldalækkanir sem skila sér beint til heimilanna. Íþróttafélögin í bænum eru burðarás í þessu starfi og í samstarfi við bæjaryfirvöld. Það er lykilatriði að sveitarfélagið sé í virku og stöðugu samtali við íþróttafélögin og atvinnulífið.
Nýkynntur ársreikningur fráfarandi meirihluta Reykjanesbæjar lofar ekki góðu. Það vissi meirihlutinn, enda hefur meirihlutinn algjörlega dregið lappirnar þegar kemur að uppbyggingu íþróttamannvirkja hér í bænum okkar sl. tvö kjörtímabil, löngu áður en mygluviðgerðir hófust fyrir milljarða í skólum bæjarins og ráðhúsinu.
Miðflokkurinn ætlar að taka til í rekstri bæjarins og tryggja að raunverulegt fjárhagslegt svigrúm verður til uppbyggingar íþróttamannvirkja á heimsmælikvarða fyrir íþróttafélögin okkar hér í Reykjanesbæ.
Miðflokkurinn vill og ætlar að leggja línurnar í samvinnu við íþróttafélögin að því Reykjanesbær verður íþróttabær með framúrskarandi aðstöðu. Mæta þörfum vaxandi bæjar og byggja upp íþróttamannvirki á heimsmælikvarða fyrir alla aldurshópa, m.a. nýja fótbolta- og fimleikahöll, hús fyrir bardagaíþróttir o.fl
Það þarf byggingar og velli sem virka fyrir Keflavík og Njarðvík.
Íþróttir og félagsstarf eru þó ekki aðeins afþreying. Þau eru mikilvægur þáttur í forvörnum og geðrænu heilbrigði ungmenna. Með virkri þátttöku í skipulögðu starfi styrkjast félagsleg tengsl, sjálfsmynd og seigla. Í því felst gríðarlegt samfélagslegt gildi sem oft er vanmetið í fjárhagslegri umræðu sveitarfélaga og ríkisstjórna.
Menningin gegnir sama hlutverki en á annan hátt. Hún er límið í samfélaginu, styrkir sjálfsmynd bæjarins og eykur lífsgæði. Sterkt menningarlíf skapar einnig tækifæri til nýsköpunar, ferðamennsku og aukins atvinnulífs. Reykjanesbær á að vera bær þar sem menning blómstrar. Ekki sem viðbót, heldur sem sjálfsagður hluti af samfélagslegri stefnu okkar í Reykjanesbæ.
Í grunninn snýst þetta um framtíðarsýn. Að líta ekki á íþrótta- og menningarstarf sem kostnað, heldur sem fjárfestingu í fólki. Fjárfestingu sem skilar sér í sterkari einstaklingum, heilbrigðara samfélagi og meiri lífsgæðum fyrir alla íbúa Reykjanesbæjar.
x-M fyrir Reykjanesbæ, öflugan íþrótta- og menningarbæ.
Rúnar Fossádal Árnason








