Aðsent

Takk fyrir okkur – í bili
Sunnudagur 10. maí 2026 kl. 22:31

Takk fyrir okkur – í bili

Það ætti öllum að vera orðið ljóst að Bein leið er ekki að bjóða fram í þessum bæjarstjórnarkosningum en við í Beinni leið höfum verið í meirihlutasamstarfi með Samfylkingunni frá 2014 og Framsókn frá 2018. Árið 2014, vorum við hópur einstaklinga sem fæst höfðum starfað í pólitísku starfi en við höfðum öll sem eitt ástríðu fyrir því að stuðla að betra samfélagi fyrir öll í Reykjanesbæ. Ég hef verið svo lánsöm að hafa verið í þessum flotta hópi einstaklinga frá upphafi. Guðbrandur Einarsson var oddviti Beinnar leiðar á árunum 2014-2022, Valgerður Björk Pálsdóttir var oddviti frá 2022 þar til hún flutti erlendis í lok síðasta árs og ég tók við. Þegar við fórum af stað í þennan leiðangur á sínum tíma þá var ljóst að það var ærið verkefni fyrir höndum, fyrst og fremst í að rétta af fjárhag bæjarfélagsins. Það má með sanni segja að það hafi tekist og við höfum haldið ábyrgum rekstri þessi 12 ár sem við höfum verið í meirihluta. Skuldaviðmiðið hjá bæjarsjóði var 228,1% í upphafi árs 2014 og stendur í dag í 104,85%. Þetta hefur þó ekki verið átakalaust. Við þurftum að taka mjög erfiðar ákvarðanir,  sérstaklega á fyrsta kjörtímabilinu okkar, en við tryggðum alltaf góða grunnþjónustu.

Það hefur verið afar lærdómsríkt að starfa fyrir bæjarfélagið á þessum tíma og við erum að ganga stolt frá borði að þessum tíma loknum. Bæjarfélagið hefur vaxið gríðarlega á þessum tíma, íbúafjöldinn hefur farið úr u.þ.b. 14.000 í rúmlega 24.000 og hefur það í sjálfu sér verið krefjandi verkefni að tryggja innviði og góða þjónustu fyrir svo ört vaxandi bæjarfélag. En það er margt sem við erum stolt af úr okkar starfi síðastliðin 12 ár en við höfum m.a.:

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
  • Byggt nýjan grunnskóla og endurbyggt tvo grunnskóla
  • Tvöfaldað sértæk námsúrræði fyrir börn
  • Innleitt gjaldfrjáls námsgögn – eitt af fyrstu sveitarfélögunum
  • Þétt byggð, m.a. með skipulagi tveggja nýrra hverfa í Dalshverfi og Hlíðarhverfi
  • Byggt þrjár nýjar leikskólaeiningar og stækkað tvo leikskóla
  • Fimmfaldað frístundastyrki og víkkað aldursbil barna sem fá styrk
  • Sett á laggirnar frístundastyrk fyrir eldri borgara
  • Byggt nýja sundlaug og nýtt íþróttahús
  • Eflt íþróttastarf með auknum þjálfarastyrkjum og ráðningu íþrótta- og fjármálastjóra félaganna
  • Stutt byggingu nýs íbúðakjarna fyrir fatlað fólk
  • Flutt Bókasafn Reykjanesbæjar í endurskipulagða Hljómahöll
  • Flutt Byggðasafnið í stærra og hentugra húsnæði
  • Eflt frístundastarf í grunnskólum og hófum frístundakstur fyrir börn
  • Innleitt Barnvænt samfélag
  • Fjölgað hjúkrunarrýmum
  • Unnið nýtt og spennandi rammaskipulag fyrir Ásbrú
  • Lagt heilsustíga vítt um bæinn

Enn eru ærin verkefni fyrir höndum en persónulega tel ég vera tækifæri til að efla enn frekar öflugt atvinnulíf á svæðinu. Einnig tel ég mikilvægt að hlúa enn betur að velferðar- og fötlunarmálum.

En til að taka af allan vafa, þá er Bein leið ekki hætt. Við erum bara ekki að bjóða fram núna. Við hlökkum til að starfa á hliðarlínunni, taka þátt í umræðunni og vera rödd í samfélaginu.

Ég vil, fyrir hönd okkar allra sem höfum starfað með Beinni leið síðustu ár, þakka ykkur bæjarbúum fyrir traustið sem okkur hefur verið sýnt, fyrir samstarfið, öll samtölin og alla gleðina. Ég vil á sama tíma óska þeim sem eru í kosningabaráttu þessa dagana og munu svo starfa í ráðum og nefndum, góðs gengis en ég hef lært að allt þetta fólk vill það besta fyrir bæinn okkar, þó við séum ekki alltaf sammála um aðferðir og leiðir.

Við göngum stolt frá borði og vitum að búið sem við skiljum eftir er gott. Takk fyrir okkur – í bili.

Helga María Finnbjörnsdóttir,
núverandi oddviti Beinnar leiðar

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar