Landsbankinn - 12. maí
Landsbankinn - 12. maí

Aðsent

Uppbygging fyrir fólk
Sunnudagur 10. maí 2026 kl. 23:01

Uppbygging fyrir fólk

Það á ekki að teljast til tíðinda að fólk byggi sér heimili í Reykjanesbæ. Samt er staðan sú í dag. Tugir einbýlishúsalóða standa auðar og húsbyggjendur þurfa að leggja fram háar upphæðir áður en fyrsta skóflustungan er tekin. Þetta er kerfi sem er hindrandi og því þarf að breyta.

Framsókn leggur til skýra og raunhæfa leið til að ryðja þessum hindrunum úr vegi. Við  leggjum til að fresta gjöldum á auðum einbýlishúsalóðum fyrir einstaklinga sem vilja byggja sitt eigið húsnæði. Með því léttum við fyrstu skrefin fyrir atorkusamt fólk, lækkum heildarkostnað við byggingu og opnum húsnæðismarkaðinn fyrir fleiri. Þetta er skynsamleg fjárfesting í fjölbreyttari búsetuformum og sterkari byggð.

Aðalbros
Aðalbros

Fjölbreytt búseta er nefnilega lykilatriði í heilbrigðu samfélagi. Þegar fleiri hafa raunhæfan kost á að byggja, eykst valfrelsi, stöðugleiki og tengsl fólks við sitt nærumhverfi. Þá þarf einnig að tryggja framboð lóða fyrir óhagnaðardrifin leigufélög, húsnæði fyrir eldri borgara og fyrir fólk með sérþarfir. Við viljum sjá Reykjanesbær þróast sem samfélag þar sem ungt fólk, barnafjölskyldur og eldri borgarar finna húsnæði við sitt hæfi.

En það er ekki eina verkefnið framundan. Í dag ríkir ójafnræði í lóðaleigu innan bæjarmarka þar sem fjórir ólíkir aðilar eiga land: bæjarsjóður, einkaaðilar, landeigendafélög og ríkissjóður. Gjaldtaka er misjöfn og skilmálar ólíkir. Þetta er hvorki gagnsætt né sanngjarnt.

Framsókn vill taka þetta föstum tökum. Við munum vinna að því að sveitarfélagið eignist land markvisst yfir tíma og setja á fót lóðasjóð. Með honum skapast grundvöllur fyrir samræmda, gagnsæja og réttláta gjaldskrá þar sem jafnræðis er gætt. Slík nálgun tryggir að allir fasteignaeigendur sitji við sama borð,  óháð því hver á landið sem heimilin þeirra standa á.

Þetta snýst um einföld en mikilvæg markmið; að gera fólki kleift að byggja, að tryggja sanngirni og að skapa traustan grunn fyrir framtíð Reykjanesbær.

Birgir Már Bragason,
skipar 4. sæti á lista Framsóknar til sveitarstjórnarkosninga 16. maí nk.

Róbert Jóhann Guðmundsson,
skipar 2. sæti á lista Framsóknar til sveitarstjórnarkosninga 16. maí nk.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar