Framsókn - 16. maí
Framsókn - 16. maí

Aðsent

Gerum góðan bæ enn betri – saman!
Sunnudagur 10. maí 2026 kl. 16:08

Gerum góðan bæ enn betri – saman!

Reykjanesbær hefur vaxið og eflst undanfarinn áratug, gott framboð lóða fyrir fólk og fyrirtæki hefur gert það að verkum að til okkar vill fólk flytja. Í bænum okkar býr allskonar gott fólk, allsstaðar að, sem er að skapa saman lifandi bæ, það þarf ekki að rölta lengi um bæinn til þess að sjá uppbygginguna sem í gangi er, stórhuginn og kraftinn - framtíðin er björt.

Vöxturinn hefur vissulega reynt á innviði bæjarins en brugðist hefur verið við því – t.d. með því að tryggja 18 mánaða börnum inngöngu á leikskóla – og bærinn hefur verið vel rekinn á vaxtartímanum enda ábyrg fjármálastjórnun og skynsöm nýting okkar sameiginlegu sjóða grunnur alls. 

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Skipulag bæjarins er skýrt, og mótað af samtaka umhverfis- og skipulagsráði í góðu samtali við íbúa. Unnið hefur verið af heilindum, vandað til hvers verkefnis og bæjarbúar upplýstir um skipulagshugmyndir sem þeir hafa nýtt sér með góðum árangri – með samtali gerum við góðan bæ betri.

Samfylkingin mun þróa bæinn okkar áfram á sjálfbæran hátt með bættum samgöngum, uppbyggingu hverfa með fjölbreyttum húsakosti fyrir fólk á öllum aldri ásamt því að skapa umhverfi sem hvetur til hreyfingar og útivistar.

Fjölbreytt og skemmtilegt samfélag

Við munum m.a. skipuleggja nýtt hverfi í Keflavíkurborgum nyrst í bænum með sérbýlum, rað- og parhúsum, vinna áfram í samvinnu við íbúa og skapa líflegt og spennandi miðsvæði á Akademíureitnum – samfélagsmiðju með verslununum, íbúðum, kaffihúsi og samkomutorgi, þróa svæðið við Svarta pakkhúsið og Fischershús og halda áfram uppbyggingu á Ásbrú.

Við munum byggja fleiri íbúðir fyrir fatlað fólk, öryrkja og aldraða í samvinnu við Brynju hússjóð og óhagnaðardrifin leigufélög, byggja námsmannaíbúðir fyrir skólafólk til að auðvelda inngöngu á húsnæðismarkaðinn og hefjast handa við að lækka lóðarleigu íbúa.

Greið og örugg leið

Við munum tryggja örugga og greiða leið fyrir gangandi, hjólandi og akandi, t.d. með hringtorgum á Njarðarbraut sem bæta umferðarflæði og auka öryggi og með ofanbyggðarvegi milli Keflavíkur og Njarðvíkur ofan Njarðvíkurskóga.

Við munum beita auknum þrýstingi á Vegagerðina til að klára tvöföldun Reykjanesbrautar að Leifsstöð og tryggja samhliða því nauðsynlegar tengingar við Reykjanesbæ og örugga þverun brautarinnar fyrir gangandi og hjólandi.

Við munum áfram setja umferðaröryggi barna í fyrsta sæti með markvissum lausnum um allan bæ.

Grænni og betri bær

Við munum ljúka uppbyggingu á göngu- og hjólastígum bæjarins, tengja Hafnir við Ásbrú og gera stíga frá Innri-Njarðvík til Voga og í Sólbrekkuskóg við Seltjörn.

Við munum byggja áfram upp útivistarperlurnar við Seltjörn og á Fitjum, fjölga útivistarsvæðum og leikvöllum í hverfunum til að hvetja til aukinnar útiveru.

Við munum efla skógrækt í bæjarlandinu með sameiginlegu átaki bæjarins, íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja. Saman gerum við bæinn grænni!

XS - fyrir fólkið í bænum

Samfylkingin býður upp á skýra framtíðarsýn um það hvernig við gerum Reykjanesbæ að besta staðnum til að búa á. Við hlustum á íbúana og vinnum í takt við vilja og óskir ykkar – saman gerum við góðan bæ enn betri!

Eysteinn Eyjólfsson,
varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar, formaður svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja og frambjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar