Grindvíkingar tóku fyrsta leikinn gegn Stólunum
Grindvíkingar náðu forystu í úrslitaeinvígi Bónus-deildar karla í körfubolta þegar þeir unnu Tindastól í fyrstu viðureign liðanna í Grindavík í kvöld. Lokatölur 85-80 í bráðskemmtilegum leik.
Grindvíkingar byrjuðu mjög vel og náðu tíu stiga forskoti í fyrsta leikhluta og bættu fimm stigum við í öðrum leikhluta. Staðan í hálfleik 49-34.
Stólarnir úr Síkinu mættu með látum eftir leikhlé og þeir unnu þriðja leikhluta með þrettán stigum og gerðu þetta aftur að leik. Þeir þjörmuðu vel að heimamönnum í blálokin, munurinn varð minnstur fjögur stig, en Stólarnir náðu ekki að klára dæmið, og urðu að játa sig sigraða 85-80.
Herra Grindavík, Ólaftur Ólafsson var heitur og skoraði mest hjá Grindavík, 19 stig. Hann tók líka 9 fráköst, Kane var með 19 stig og tók 13 fráköst, og Pargo skilaði 16 stigum og gaf 9 stoðsendingar.
Badmus og Basile voru atkvæðamestir hjá Stólunum að venju með 22 og 19 stig.
Grindavík-Tindastóll 85-80 (28-18, 21-16, 13-26, 23-20)
Grindavík: Ólafur Ólafsson 21/9 fráköst, Deandre Donte Kane 19/13 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Jeremy Raymon Pargo 16/9 stoðsendingar, Jordan Semple 14/10 fráköst/4 varin skot, Ragnar Örn Bragason 6, Unnsteinn Rúnar Kárason 6, Kristófer Breki Gylfason 3, Patrekur Atlason 0, Alexander Veigar Þorvaldsson 0, Arnór Tristan Helgason 0, Nökkvi Már Nökkvason 0, Valur Orri Valsson 0.
Tindastóll: Taiwo Hassan Badmus 22/7 fráköst/3 varin skot, Dedrick Deon Basile 19/9 fráköst, Adomas Drungilas 13/9 fráköst, Ragnar Ágústsson 9/6 fráköst, Pétur Rúnar Birgisson 6, Júlíus Orri Ágústsson 5, Sigtryggur Arnar Björnsson 4, Daniel Dolenc 2, Viðar Ágústsson 0, Víðir Elís Arnarsson 0, Davis Geks 0, Hallur Atli Helgason 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Jóhannes Páll Friðriksson, Davíð Kristján Hreiðarsson
Viðureign: 1-0











