Kenny Hogg kveður Njarðvík eftir níu ár
Knattspyrnudeild Njarðvíkur og Kenny Hogg hafa komist að samkomulagi um að ljúka samstarfi sínu. Kenny hefur leikið með Njarðvík í níu ár, en hann kom til félagsins árið 2017.
Kenny hefur verið lykilmaður í liðinu og borið fyrirliðabandið síðustu ár. Hann hefur tvisvar farið upp um deild með liðinu og átti þátt í besta árangri í sögu félagsins. Hann kveður sem markahæsti leikmaður Njarðvíkur frá upphafi með 75 mörk í 227 leikjum. Hann er jafnframt þriðji leikjahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins.
Samstarfinu lýkur í góðu og þakkar félagið honum fyrir hans framlag bæði innan og utan vallar. Kenny hefur ekki verið hluti af liðinu í vetur eða í upphafi þessa tímabils.
Njarðvík mun heiðra Kenny fyrir leikinn gegn Fylki á JBÓ vellinum á morgun. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og eru stuðningsmenn hvattir til að mæta og kveðja leikmanninn.









