Íþróttir

Ef við spilum svona næstu 19 leikina þá verður þetta frábært sumar
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
miðvikudaginn 6. maí 2026 kl. 06:27

Ef við spilum svona næstu 19 leikina þá verður þetta frábært sumar

„Mér fannst við hreinlega eiga skilið að vinna þennan leik,“ segir Gylfi Tryggvason, þjálfari sameinaðs liðs Grindavíkur og Njarðvíkur, eftir svekkjandi en afar lofandi frumraun liðsins í Bestu deildinni gegn Val á laugardag. Þrátt fyrir 2–1 tap á Hlíðarenda geislaði Gylfi af stolti yfir frammistöðu sinna kvenna.

Nýliðarnir byrjuðu leikinn af krafti, þótt Gylfi viðurkenni að það hafi tekið örfáar mínútur að hrista af sér mesta hitann.

Aðalbros
Aðalbros

„Við þurftum aðeins að vinna okkur inn í leikinn fyrstu tíu mínúturnar, en eftir það fannst mér við ná stjórn. Við héldum þeirri stjórn í 80 mínútur. Það eina sem vantaði í dag voru úrslitin, en frammistaðan var frábær. Liðið sýndi svo um munaði að við eigum klárlega erindi í þessa deild,“ segir Gylfi ákveðinn.

Tekur frammistöðuna fram yfir úrslitin

Þjálfarinn er óhræddur við framhaldið ef liðið heldur áfram á sömu braut. Hann segir jákvæðu punktana úr fyrsta leiknum vera mun fleiri en þá neikvæðu.

„Það er alltaf eitthvað sem má bæta, en ef þú myndir bjóða mér að spila svona næstu 19 leiki í þessari deild þá myndi ég taka því strax. Ef þetta er það sem koma skal þá verður þetta frábært sumar hjá okkur.“

Sterkara lið en í fyrra

Grindavík/Njarðvík vann 1. deildina í fyrra og Gylfi telur að liðið sé núna enn öflugra en það var á síðustu leiktíð. Undirbúningstímabilið hafi verið nýtt vel til að fínstilla hópinn fyrir efstu deild.

„Við erum með betra lið en í fyrra. Við höfum náð að styrkja okkur með virkilega öflugum leikmönnum og þeir leikmenn sem voru hérna fyrir hafa tekið mörg skref fram á við. Við erum að spila svipaðan fótbolta og liðsheildin er alveg jafn stórkostleg og hún var í fyrra – við erum bara aðeins betri í öllu.“

Hann bætir því við að liðið sé nú þegar andlega og líkamlega tilbúið í þá hörku sem fylgir Bestu deildinni. „Við fengum allt sem við vildum út úr undirbúningstímabilinu.“

Nýgráðaður og tilbúinn í baráttuna

Gylfi mætir til leiks í sumar með nýja þekkingu í farteskinu, en hann lauk nýverið UEFA-þjálfaragráðu. Hann segir námið og samstarfið við aðra þjálfara hafa gefið sér mikið.

„Maður er alltaf að safna þessum gráðum. Það er gott að hitta aðra færa þjálfara, taka innblástur frá þeim og sækja sér alla þá þekkingu sem er í boði. Það hjálpar allt þegar maður stýrir liði á þessu stigi.“

Stuðningurinn ómetanlegur

Þrátt fyrir að leikið hafi verið á útivelli í Reykjavík fann Gylfi vel fyrir stuðningnum úr stúkunni. Hann hlakkar nú til að fá liðið „heim“ á grasið í Njarðvík í næstu umferð.

„Það var ómetanlegt að heyra stuðninginn í dag, fólkið var eins og aukaleikmaður með okkur. Núna tekur bara við næsta viðureign gegn Þór/KA. Þær koma í heimsókn á græna grasið í Njarðvík og við hlökkum mikið til að taka á móti þeim þar.“

Natasha Anasi er gengin til liðs við Grindavík/Njarðvík.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar