Aðalbros
Aðalbros

Fréttir

Ömurleg aðkoma eftir innbrot í bíl í Innri Njarðvík
Þriðjudagur 5. maí 2026 kl. 12:08

Ömurleg aðkoma eftir innbrot í bíl í Innri Njarðvík

Íbúi á Svölutjörn í Innri Njarðvík varð fyrir leiðinlegri lífsreynslu í morgun þegar hann kom að bílnum sínum á leið til vinnu. Búið var að brjótast inn í bifreiðina með því að mölva rúðu bílstjóramegin.

Að sögn eigandans, Jóhanns Rúnars Kristjánssonar, átti innbrotið sér stað við Svölutjörn 13. Aðkoman var ömurleg, glerbrot um allan bíl. Talið er að verknaðurinn hafi verið framinn á milli klukkan 03:00 og 05:00 í nótt. Einum hlut var stolið úr bílnum, svokölluðum radarvara.

Aðalbros
Aðalbros

Eigendur ökutækja eru minntir á að skilja ekki verðmæti eftir í bílum sínum til að fyrirbyggja þjófnað. Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um málið eða urðu varir við mannaferðir á þessum tíma eru hvattir til að láta lögreglu vita.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar