Aðalbros
Aðalbros

Mannlíf

Gullöldin mætir nútímanum í Vori á Vatnsnesi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
þriðjudaginn 5. maí 2026 kl. 10:21

Gullöldin mætir nútímanum í Vori á Vatnsnesi

Í tilefni þess að Hótel Keflavík fagnar 40 ára starfsafmæli sínu, verður slegið upp einni metnaðarfyllstu vorhátíð ársins þann
16. maí næstkomandi undir yfirskriftinni „Vor á Vatnsnesi“. Við settumst niður með Lilju Karen Steinþórsdóttur, aðstoðarhótelstjóra, og Jakobi Frímanni Magnússyni, tónlistarmanni og menningarmiðlara, sem hefur það hlutverk að leiða tónlistardagskrána á útisviði við Vatnsneshúsið og ræddum þennan mikla viðburð þar sem sagan, nútíminn og framtíðin mætast á grasbakkanum við Vatnsnesið.

Vagga menningarbyltingarinnar

Aðalbros
Aðalbros

Jakob Frímann Magnússon þarf varla að kynna fyrir landsmönnum, en hann hefur að undanförnu kafað djúpt í tónlistarsögu svæðisins til að setja saman dagskrá sem hann kallar „skemmtimennt“. Jakob bendir á að á meðan Vor í Vaglaskógi sé þekktasta vísunin í íslenskri dægurlagasögu, þá eigi Vor í Vatnsnesi fyllilega erindi sem nýr fastapunktur. Hann rifjar upp hvernig það var þegar Steinþór Jónsson, hótelstjóri, sem leitaði til hans í fyrra með þá ósk að gefa afmælishátíðinni aukið vægi og sögulega dýpt.

„Ég var fljótur að fá andgjöfina,“ segir Jakob og verður mikið niðri fyrir. „Við erum hér í vöggu hryntónlistarinnar á Íslandi. Það er engin tilviljun að Keflavík varð miðja alheimsins í íslensku Bítli, með stóru Béi. Hér mættust straumar frá herstöðinni og hljómplötur sem bárust yfir hafið. Hér var jarðvegurinn sem ól af sér fremstu tónlistarmenn og hljómsveitir þjóðarinnar; Hljóma. Óðmenn, Júdas, Elly Vilhjálms, Vilhjálm Vilhjálmsson og fjölmarga aðra. Í menningarbyltingu hippanna á síðustu öld hafnaði unga fólkið viðteknum venjum og hefðum,  burstaklippingunni og jakkafötunum og fann frelsið í bítinu.“

Jakob rifjar upp þegar hann sjálfur, nýfermdur drengur, fann gæsahúðina hríslast um sig þegar hann sá hljómsveitina Óðmenn á sviði í Austurbæjarbíói í Reykjavík. Sú sveit, með Shady Owens í forgrunni, Magnús Kjartansson á Hammond-orgel, Val Einarsson á gítar, Jóhann G. Jóhannsson á sex strengja bassa og Pétur Östlund við trommurnar, flutti með sér nýjan bandarískan Tamla Motown fönktakt sem átti uppruna sinn í bílaborginni Detroit (Motor Town / Motown) og barst til Keflavíkur beint af herstöðvaböllunum í Keflavík. Hann bendir á að á þeim tíma hafi íhaldið í Reykjavík talið þessa tónlist vera „tónlist djöfulsins“ og varað við því að popparar fengju nokkurn tímann listamannalaun. Það gerðist hins vegar stuttu síðar þegar Gunnar Þórðarson fékk sín listamannalaun.

Týndi sonurinn og arfleifð Hljóma

Hápunktur hátíðarinnar þann 16. maí verður tveggja tíma tónlistardagskrá á útisviði þar sem sagan lifnar við. Jakob hefur fengið Óðmenn til að stíga aftur á svið, en í þetta skiptið með sögulegu ívafi. Ásamt þeim mun koma fram sonur Péturs Östlund, en það sem mun sennilega vekja mesta athygli er þátttaka sonar Jóhanns G. Jóhannssonar. Jakob segir söguna af því þegar Jóhann, rétt fyrir andlát sitt, kynntist þessum „týnda syni“ sínum sem hefur nákvæmlega sömu rödd og faðir hans. Það verða því miklar tilfinningar í loftinu þegar hann flytur lög föður síns með hans gömlu hljómsveit.

Einnig verður tónlist Hljóma gerð rækileg skil. Meðal þeirra sem fram koma eru nokkrir eftirlifandi og fullfrískir meðlimir sveitarinnar, m.a. fyrrum forsöngvari Hljóma, Karl Hermannsson Erlingur Björnsson gitarleikari og trommarinn Eggert Kristinsson. Þeim til halds og trausts verða synir Rúnars Júlíussonar, þeir Baldur og Júlíus. Þess má geta að forsöngvarinn Karl Hermannsson, sem samdi Léttir í lundu, sem Einar og félagar í Pónik gerðu svo landsfrægt.

Keflvíkingarnir Valdimar og Ásgeir stíga svo á svið og verða með læti la-la-la-la-læti þegar flueldasýningin hefst.

„Bláu augun“ hefðu orðið stærri en „Yesterday“ væru þau á ensku

Jakob rifjar upp skemmtilega sögu af því þegar hann fór með Hljóma til Liverpool árið 2008 og hitti þar fyrsta umboðsmann Bítlanna, sem táraðist þegar þeir sungu fyrir hann „Bláu augun þín“ og sagði sá ágæti umboðsmaður að hefði það lag verið með enskum texta, hefði það getað orðið stærra en „Yesterday“.

Jafnframt verður tónlist Magnúsar og Jóhanns fagnað, en Jakob lék stórt hlutverk í að koma þeim félögum á samning á sínum tíma.

Frá morgun„Rave“i til
flugeldasýningar á Vatnsnesi

Lilja Karen Steinþórsdóttir markaðsstjóri Hótel Keflavík, hefur umsjón með skipulagningu dagsins og hún leggur áherslu á að þetta sé hátíð fyrir alla bæjarbúa. Dagskráin er fjölbreytt og hefst hún með krafti strax klukkan tíu um morguninn.

Fyrsti liður dagsins er hið svokallaða KEF Moët Kampavínshlaup, fimm kílómetra skemmtihlaup meðfram sjónum. Til að hita hópinn upp mætir plötusnúðurinn DJ Sakki til að tryggja að takturinn sé réttur strax í byrjun dags.

Eftir fimm kílómetrana tekur við stutt en snörp keppni, 40 metra KEF kampavínsspretthlaupi til heiðurs 40 ára afmæli hótelsins, þar sem markmiðið er að klára hlaupið með sem mest í glasinu.

Lilja segir að í kjölfarið fylgi skemmtilegt danspartý eða „Apré Run Rave“ með DJ Sakka á túninu þar sem allir eru velkomnir að dansa og njóta dagsins, óháð því hvort þeir hafi tekið þátt í hlaupinu eða ekki.

Eftir hádegið færist áherslan yfir á fjölskylduna en þá mætir Leikhópurinn Lotta með sýningu fyrir börnin, Hoppukastalar verða á svæðinu og Lúðrasveit Reykjanesbæjar þeytir lúðra sína. Götubitar verða í boði við Vatnsneshúsið og fólki er boðið að skoða þær miklu endurbætur sem gerðar hafa verið á húsinu. Auk þess að verða herramannssetur og móttökuhús, rekið af Hótel Keflavík, er Vatnsneshúsið sannkallað menningarsetur með einstökum listaverkum til framtíðar og listasýning í sjálfu sér um leið og heiður hússins frá 1934 fær fulla virðingu.

Samhliða þessu verður mikið um að vera í miðbænum. Verslanir í Betri bæ munu bjóða upp á sérstök tilboð og ókeypis verður inn á söfn bæjarins í Duus-húsum. Lilja Karen nefnir að hún hafi fundið fyrir miklum velvilja hjá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu sem vilji öll leggja sitt af mörkum til að gera þetta að árlegum viðburði.

Hátíðin nær svo hámarki þegar kvöldtónleikarnir, undir stjórn Jakobs, hefjast klukkan hálfníu.Tónleikunum lýkur, klukkan 22:40, en sú tímasetning vísar aftur til 40 ára afmælisins. Þá mun Björgunarsveitin Suðurnes skjóta upp glæsilegri flugeldasýningu rétt þegar sólin sest.

Með því verður settur lokapunktur við dag sem Lilja og Jakob vona að verði upphafið að nýrri hefð á Vatnsnesi, þar sem saman mætast tónlistarsaga bítlabæjarins og nútímaleg vorhátíð. Upplýsingar um alla dagskrána er að finna á vef hótelsins, kef.is, og eru allir hvattir til að flagga íslenska fánanum og taka þátt í gleðinni.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar