Hátíðardagskrá í Stapa 1. maí
Stéttarfélögin í Reykjanesbæ bjóða íbúum til hátíðar- og baráttufundar í Stapa, Hljómahöll, föstudaginn 1. maí. Dagskráin hefst formlega klukkan 14:00 en húsið opnar korteri fyrr, þar sem Blásturssveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar tekur á móti gestum með hátíðlegum tónum. Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður VSFK, verður kynnir dagsins og stýrir gestum í gegnum fjölbreytta dagskrá þar sem samstaða og menning fara hönd í hönd.
Hátíðarræðu dagsins flytur Kristján Gunnarsson, formaður félags eldri borgara á Suðurnesjum, en hann á að baki áratuga starf innan verkalýðshreyfingarinnar. Að loknum ræðuhöldum tekur við lífleg og fjölbreytt skemmtun þar sem listafólk á öllum aldri fær að njóta sín. Ungleikhúsið/PPU stígur á svið og Kósýbandið flytur nokkur vel valin lög, auk þess sem Guðmundur Hermannsson sér um létta tóna á milli atriða.
Einn af hápunktum dagsins verður þegar Leikfélag Keflavíkur sýnir atriði úr hinum kraftmikla söngleik We Will Rock You. Dagskránni lýkur svo með glæsilegum söng frá Kór Ytri Njarðvíkurkirkju.
Þeim yngstu en boðið upp á sérstaka bíósýningu í Sambíóinu við Hafnargötu klukkan 12:00.
Stéttarfélögin minna á að allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.






