Þriðjudagur 21. apríl 2026 kl. 13:54

27. upplýsingafundur Járngerðar: Golfklúbbur Grindavíkur stefnir á 1.000 meðlimi

– 50 milljóna styrkjapottur til úthlutunar hjá Byggðastofnun

Gríðarleg fjölgun hefur orðið í Golfklúbbi Grindavíkur (GG) og stefnir klúbburinn á að opna völlinn fyrir félagsmenn þann 1. maí næstkomandi. Á upplýsingafundi Járngerðar í gær kom fram að búist sé við líflegu sumri í Grindavík og að nýr styrkjapottur fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sé væntanlegur á næstu dögum.

Golfvöllurinn opnar 1. maí

Helgi Dan Steinsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur, upplýsti á fundinum að stefnt sé að opnun vallarins þann 1. maí fyrir félagsmenn og fyrir almenning strax í kjölfarið. Þrátt fyrir erfiða tíð í vetur lítur völlurinn vel út.

Vakin var athygli á ótrúlegri fjölgun meðlima í klúbbnum. Í lok árs 2023 voru meðlimir 249 en í dag eru þeir orðnir 806. Helgi telur að fjöldinn gæti náð 1.000 manns í sumar. Ákvörðun klúbbsins um að lækka árgjaldið úr 90.000 kr. í 44.900 kr. hefur slegið í gegn. „Við sjáum fram á að það verði brjálað að gera hjá okkur í sumar eins og síðasta sumar var,“ sagði Helgi en um 20.000 hringir voru spilaðir á vellinum í fyrra.

50 milljónir til fyrirtækja á næstu dögum

Skarphéðinn Berg Steinarsson, formaður nefndar um málefni Grindavíkur, greindi frá því að um 50 milljónir króna standi eftir í sjóði hjá Byggðastofnun sem ætlaðar eru til stuðnings litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Til stendur að auglýsa eftir umsóknum á nýjan leik á næstu dögum þegar formsatriðum er lokið hjá iðnaðarráðuneytinu.

Hreinskiptin umræða um ásættanlega áhættu

Mikið var rætt um hugtakið „ásættanleg áhætta“ og nýútkomna skýrslu Alþjóðabankans. Skarphéðinn sagði unnið að því að ná samstöðu um hvernig skilgreina skuli áhættu til framtíðar svo hægt sé að opna fyrir aðgengi að lánsfé og tryggingum á svæðinu, en það er nú í „lás“ (e. deadlock).

Guðbjörg Eyjólfsdóttir gagnrýndi harðlega núverandi áhættumat almannavarna og benti á augljósar rangfærslur í plagginu þar sem texti um skammdegi og veðurfar virðist hafa verið afritaður milli árstíða án leiðréttingar. Skarphéðinn lofaði að koma þeim ábendingum á framfæri.

Sólveig Þorvaldsdóttir og Ómar Davíð Ólafsson ræddu mikilvægi þess að hagsmunaaðilar og samfélagið í Grindavík fái að koma að gerð áhættumatsins. Skarphéðinn benti á að samkvæmt alþjóðlegum stöðlum þurfi sjálfstætt áhættumat að vera unnið af óháðum aðilum, en þátttaka heimamanna sé lykilatriði í ferlinu við að skilgreina hvaða áhætta telst ásættanleg.

Staðan á fasteignamarkaði

Fram kom á fundinum að fjárhagsleg endurreisn Grindavíkur velti mikið á því að markaðskerfi með fasteignir fari aftur af stað. Til þess þurfi bankar að geta metið áhættu og veitt lán, sem er ekki hægt í dag þar sem náttúruhamfaratryggingar (NT) eru ekki með fullnægjandi baktryggingar fyrir nýjum lánveitingum á svæðinu. Guðmundur P. Davíðsson lagði áherslu á að ríkið þyrfti að stíga inn í þetta ferli með lánasjóði eða ríkisábyrgðum til að rjúfa kyrrstöðuna.

Að lokum var fólk hvatt til að mæta á íbúafund Grindavíkurbæjar sem haldinn verður á miðvikudaginn.