Nærmynd: Ástríðukokkur á árbakkanum
Sigvaldi Arnar Lárusson, sem flestir Suðurnesjamenn þekkja sem Silla löggu, átti upphaflega aðra drauma en að klæðast lögreglubúningnum. Hann ætlaði nefnilega að verða kokkur og „sumarafleysingin“ í lögreglunni árið 2000 er í raun enn í gangi. Í Nærmynd dagsins kynnumst við manninum á bak við búninginn – veiðimanninum sem elskar laxalykt á puttunum, fréttasjúka „smáhestinum“ sem forðast lestur bóka og ástríðukokknum sem galdrar fram sitt eigið snilldarverk í eldhúsinu. Við ræddum við Silla um allt frá leyndarmálum á Twin Cam Corollu yfir í draumakvöldverðinn með pabba og nafna.
Nafn: Sigvaldi Arnar Lárusson
Árgangur: 1974.
Búseta: Reykjanesbær.
Hverra manna ertu og hvar uppalin(n)? Sonur Stínu og Lalla á sjúkrabílnum og alinn upp að mestu í Háaleiti 7 og Eyjavöllum 1 í Keflavík.
Starf: Lögreglumaður.
Hvað er í deiglunni: Taka á móti vori og sumri.
Hvernig nemandi varstu? Úff, ekki viss um að ég hefði haft þolinmæði til að kenna okkur strákunum. En hins vegar ber ég mjög mikla virðingu fyrir kunnurum í dag og þeir eiga heiður og hrós skilið fyrir að hreinlega meika þetta.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Fermingarveislan sjálf, maturinn og gjafirnar. Fékk geggjaða Pioneer-græjusamstæðu í fermingargjöf.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Kokkur og gerði það… sótti svo um sumarafleysingar í löggunni sumarið 2000 og það sumar er reyndar bara enn í gangi.
Áttu einhverja sérstaka fyrirmynd? Nei, svo sem ekki.
Hvert var uppáhaldsleikfangið þitt þegar þú varst krakki? Fótboltinn.
Besti ilmurinn? Af vorinu, nýslegnu grasi og laxalykt á puttunum.
Á hvernig bíl lærðir þú fyrir bílprófið? Mig minnir að það hafi verið Mitsubishi Lancer.
Á hvaða bíl fórstu fyrsta rúntinn eftir prófið og með hverjum? Saga að segja frá því (sem má ekki segja) en það var á bíl sem ég keypti áður en ég fékk prófið. Toyota Corolla Twin Cam 1988 árgerð. Það var enginn annar en Facebook-kóngurinn Friðrik Friðriksson æskuvinur minn sem var með mér.
Hvernig slakarðu á? Slaka best á við á eða vatn og með veiðistöng í hönd og svo heima í pottinum með fjölskyldunni, en þar hafa margar samræðurnar átt sér stað.
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Ég er fréttasjúkur.
Uppáhaldsvefsíða? Mbl.is, Sporðaköst og anglingiq.com.
Hvað heldurðu að skjátími þinn sé mikill á hverjum degi að jafnaði? Ég slökkti á þessum fídus í símanum mínum fyrir löngu, þori ekki að gá.
Besta bíómyndin? Shawshank
Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Ronnie O’Sullivan og Alan Shearer.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Eldað.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Rib eye og meðlæti.
Hvert er hættulegasta helgarnammið? Hraun og ískalt Egils appelsín.
Hvernig er eggið best? Eldað.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Óstundvísi.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Óstundvísi.
Uppáhaldsmálsháttur eða tilvitnun? Sýnd veiði en ekki gefin.
Hver er elsta minningin sem þú átt? Hjólhestaspyrnumark sem ég skoraði einhvern tíma í leik á Hofsós…… agalega flott í minningunni.
Hver er uppáhaldsbókin þín og rithöfundur? Er ekki þekktur fyrir að vera mikill lestrarhestur, er meira svona smáhestur þegar kemur að lestri.
Er orð eða frasi sem þú notar mikið? Hvað eigum við að borða?
Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð? Pabba, Sigvalda nafna mínum og börnunum mínum sem þyrftu bara að deila þessum eina rétti.
Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? 1888
Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Með ´ann.









