Barnamenningarhátíðin Skelin haldin í annað sinn í Suðurnesjabæ
Barnamenningarhátíðin Skelin verður haldin með pompi og prakt í Suðurnesjabæ dagana 13. til 19. apríl næstkomandi. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er sett á laggirnar en markmiðið er að efla barnamenningu á svæðinu og skapa skemmtilegan vettvang fyrir fjölskyldur til að njóta samveru og nýrra upplifana.
Þema hátíðarinnar í ár er tengt skeljum og skrímslum, sem mun lita marga af þeim fjölbreyttu viðburðum sem í boði eru. Lögð er áhersla á gleði og sköpun í dagskránni, sem skipulögð er í góðu samstarfi stofnana og annarra aðila í Suðurnesjabæ með styrk frá Sóknaráætlun Suðurnesja.
Sérstakur bæklingur með nákvæmri dagskrá hefur verið sendur heim með öllum leik- og grunnskólabörnum í sveitarfélaginu. Þess má geta að frítt er inn á alla viðburði hátíðarinnar og eru fjölskyldur hvattar til að fjölmenna og njóta þess sem í boði er.






