Heimildarmynd um stækkun orkuvers í skugga jarðhræringa
Í heimildarmyndinni Í takti við náttúruna, eftir Baldvin Vernharðsson, er saga HS Orku sögð frá bæjardyrum þeirra sem staðið hafa í stafni í rekstri orkuversins í Svartsengi síðastliðin rúm tvö ár, unnið við stækkunarframkvæmdirnar og tekist á við þær miklu áskoranir sem fylgt hafa náttúruvánni – ekki síst hraunrennsli úr Sundhúksgígaröðinni.
Heimildarmyndin varpar ljósi á útsjónarsemi, þrautseigju og aðlögunarhæfni Íslendinga og þær einstöku aðstæður sem fyrirtækið HS Orka hefur starfað við síðustu misseri í takti við náttúruna á Reykjanesskaga.
Heimildarmyndin Í takti við náttúruna var frumsýnd í Svartsengi 1. desember 2025 við hátíðlega athöfn sem markaði einnig formlega gangsetningu sjöunda orkuversins í Svartsengi.

