Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Skáldasuð fyllir Reykjanesbæ af ljóðum og list: Seinni upplestur hátíðarinnar á fimmtudag
Miðvikudagur 15. apríl 2026 kl. 06:35

Skáldasuð fyllir Reykjanesbæ af ljóðum og list: Seinni upplestur hátíðarinnar á fimmtudag

Ljóða- og listahátíðin Skáldasuð stendur nú sem hæst í Reykjanesbæ. Hátíðin, sem er hugarfóstur myndlistarkonunnar og skáldsins Gunnhildar Þórðardóttur, er nú haldin í þriðja sinn og teygir anga sína um allan bæ; í sundlaugar, kjörbúðir, á göngustíga og í sýningarsali.

Fimmtudaginn 16. apríl kl. 17:00 fer fram seinni stórupplestur hátíðarinnar í Bókasafni Reykjanesbæjar. Þar munu reynd og ný skáld leiða saman hesta sína og eiga samtal við áheyrendur í einlægu andrúmslofti.

Nesraf
Nesraf
Glæsilegur hópur skálda á Bókasafninu

Fram koma fjölbreytt skáld sem mörg hver fagna nýútkomnum verkum:

  • Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir les úr nýrri þýðingu sinni á ljóðum verðlaunaskáldsins Mosab Abu Toha.

  • Margrét Gísladóttir les úr ljóðabók sinni Við vegg tímans.

  • Mazen Maarouf, verðlaunaskáld frá Palestínu, flytur ljóð úr eigin safni.

  • Valdimar Tómasson les úr nýrri bók Grímu Kamban, Gul viðvörun.

  • Ægir Karl Ægisson kynnir sínar einstöku ljóðamyndir.

  • Gunnhildur Þórðardóttir, höfundur hátíðarinnar, les einnig úr verkum sínum.

Ljóð í lauginni og heilun í Duushúsum

Skáldasuð er ekki hefðbundin hátíð sem einskorðast við sýningarsali. Ljóð eftir fjölda þekktra skálda á borð við Guðberg Bergsson, Vilborgu Dagbjartsdóttur og Jónas Reyni Gunnarsson má finna á óvæntum stöðum, allt frá Vatnaveröld yfir í hillur kjörbúða. Þá taka nemendur úr Myllubakkaskóla þátt í að prýða bæinn ljóðum.

Í Bíósal Duushúsa stendur yfir sýningin Heilun, þar sem tólf listamenn sýna verk sem eiga það sameiginlegt að hafa texta að leiðarljósi eða heilun sem innblástur. Sýningin er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12–17.

Fyrir alla fjölskylduna

Laugardaginn 18. apríl kl. 13:00 verður boðið upp á ljóðalistsmiðju fyrir börn og foreldra í Duushúsum undir leiðsögn Gunnhildar. Þá munu örupplestrar birtast á Facebook-síðu Skáldasuðs næstu daga, en þeim verður miðlað beint úr sundlaugum og af göngustígum bæjarins.

Útrás á Austfirði

Hátíðin mun svo halda í útrás í maílok þegar hún færist yfir á Seyðisfjörð og Egilsstaði undir nafninu Skáldaþing. Katla Rut Pétursdóttir mun stýra hátíðinni þar, en verkefnið leitast við að tengja saman listamenn af Suðurnesjum og Austfjörðum.

Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á Facebook-síðu Skáldasuðs.