KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Nýtt verknámshús FS tilbúið haustið 2028: Framkvæmdir hefjast í janúar
Fimmtudagur 16. apríl 2026 kl. 17:36

Nýtt verknámshús FS tilbúið haustið 2028: Framkvæmdir hefjast í janúar

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt tímalínu fyrir langþráða uppbyggingu verknámsaðstöðu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Samkvæmt áætlunum munu verkframkvæmdir hefjast í janúar á næsta ári og er stefnt að því að kennsla geti hafist í nýju húsnæði haustið 2028.

Eftir talsverða óvissu um framtíð uppbyggingar við skólann liggur nú fyrir skýrari sýn á framhaldið. Hönnunarvinna er fyrirhuguð í júní nk. og er gert ráð fyrir að framkvæmdum ljúki endanlega sumarið 2028.

Hluti af stærri sókn í verknámi

Uppbyggingin við FS er liður í stærra átaki ráðuneytisins í verknámsaðstöðu framhaldsskóla víðs vegar um landið. Samhliða framkvæmdum í Reykjanesbæ verður ráðist í sambærileg verkefni við Verkmenntaskólann á Akureyri, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Menntaskólann á Ísafirði.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fyrir liggur heimild til að fara í útboð þar sem bæði hönnun og framkvæmdahluti verða boðin út í einum pakka til að flýta ferlinu.

Fimm milljarðar í uppbyggingu

Fjármögnun verkefnanna er tryggð með uppsöfnuðum fjárheimildum fyrri ára og fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030. Samtals eru tæpir fimm milljarðar króna (4.967 milljónir) fráteknir til uppbyggingar verknámsskóla á tímabilinu.

Auk skólanna fjögurra sem nú hefja sína vegferð nýtast þessir fjármunir einnig í áframhaldandi uppbyggingu verknámsaðstöðu Fjölbrautaskólans í Breiðholti sem þegar er hafin.