Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Íþróttir

Forvitinn um allt sem liggur á bak við frammistöðuna
Fimmtudagur 16. apríl 2026 kl. 06:00

Forvitinn um allt sem liggur á bak við frammistöðuna

Frá mótlæti til markmiða: Hreggviður leiðir leikmenn í gegnum pressuna

Eftir fimmta heilahristinginn var kominn tími til að leggja takka–skónum. Við tók íþróttaferill á andlegum nótum. Hreggviður Hermannsson hefur á stuttum tíma farið frá því að vera á hátindi leikmannaferils síns á vellinum, yfir í að vinna með það sem gerist á bak við frammistöðuna, hugann sjálfan.

Árið 2025 rættist draumur gamla Keflvíkingsins að koma heim eftir langa veru hjá nágrannaliðum. „Ég fæ svo þungt höfuðhögg sem gerir það að verkum að ég næ ekki að spila keppnisleik fyrir Keflavíkurliðið. Í einhverjum heimi hefði ég líklegast reynt að taka slaginn en með barn á leiðinni og svo þetta spennandi nám í vændum ákvað ég að nú væri nóg komið og setti skóna á hilluna,“ segir Hreggviður.

Nesraf
Nesraf

Við tók starf sem íþróttasálfræðiráðgjafi. Hreggviður starfar í dag með meistaraflokkum Keflavíkur, þar sem leikmenn geta leitað til hans í einstaklingsviðtölum. Þar er unnið með þætti eins og sjálfstraust, einbeitingu og undirbúning fyrir leiki.

Hreggviður segir að slíkt fyrirkomulag sé ekki sjálfgefið á Íslandi - sérstaklega fyrir unga leikmenn sem eru að taka fyrstu skrefin í meistaraflokki.

„Það getur reynt heilmikið á hausinn. Pressan eykst og allt í einu ertu að æfa með leikmönnum sem þú horfðir á sem krakki.“

Hreggviður Hermannsson er 25 ára gamall Keflvíkingur sem snemma þótti efnilegur í fótboltanum. Leiðin lá í gegnum Holtaskóla og síðar Fjölbrautaskóla Suðurnesja, þar sem áhuginn á íþróttum þróaðist fljótt út fyrir sjálfar æfingarnar. Fótboltaferill Hreggviðs var nokkuð áhugaverður. Hann var tæknilegur og hraður leikmaður í yngri flokkum, fékk snemma tækifæri með meistaraflokki og fór á láni til Víðis Garði þar sem hann öðlaðist mikilvæga reynslu. Síðar lá leiðin til Njarðvíkur þar sem hann spilaði í fimm tímabil og þróaðist sem leikmaður, færði sig af kantinum inn á miðju og að lokum í vinstri bakvörð.

Í FS kynntist hann í fyrsta sinn fræðilegri hlið íþróttanna í gegnum afreksbrautina. Þar hlustaði hann á fyrirlestra um næringu, svefn, íþróttasálfræði og þjálfunarfræði og það breytti hugsun hans.

„Þetta kveikti neista hjá mér snemma og ég fór að verða forvitnari um fleiri hluti heldur en að mæta bara á æfingar.“

Þrátt fyrir að hafa ekki strax skýra framtíðarsýn lá leiðin í sálfræðinám við Háskólann í Reykjavík, þar sem hann lauk BSc-gráðu árið 2023. Það var þó ekki fyrr en á þriðja ári sem hlutirnir fóru að skýrast.

„Ég var búinn að vera að vinna með íþróttasálfræðing sjálfur sem leikmaður og þar kviknaði ný ástríða.“

Með leiðsögn frá Hafrúnu Kristjánsdóttur mótaðist næsta skref. Þar sem íþróttasálfræði var ekki í boði hérlendis á þeim tíma þurfti að finna aðra leið sem endaði með meistaragráðu í íþróttavísindum með áherslu á íþróttasálfræði árið 2025.

„Það sem ég geri er að hjálpa fólki að styrkja sig í krefjandi aðstæðum og ná stöðugri frammistöðu undir álagi.“

Aðferðir hans byggja á því að þróa hugrænan styrk, skýra sjálfsmynd og dýpri tengingu við eigin gildi en hann leggur áherslu á að þessi verkfæri eigi ekki aðeins við í íþróttum.

„Þetta snýst ekki bara um íþróttir heldur líka um að hjálpa fólki að verða sterkari og meðvitaðri útgáfa af sjálfu sér.“

Inn í klefann hjá Keflavík

Bakgrunnur hans sem leikmaður er lykilatriði í starfinu í dag hjá Keflavík. Hann þekkir umhverfið, pressuna og sveiflurnar sem fylgja íþróttum - ekki síst vegna eigin reynslu af meiðslum og mótlæti. Sú reynsla hefur mótað nálgun hans og gerir honum kleift að tengjast íþróttafólki á raunverulegan hátt.

„Ég hef sjálfur þurft að takast á við óvissu og tímabil þar sem hlutirnir gengu ekki eins og maður vonaði. Ég þekki vel tilfinningarnar og aðstæðurnar sem þau upplifa og það skapar traust.“

Viðtal: Eyþór Sæmundsson. Myndir: Víkurfréttir.

Hreggviður Hermannsson t.h. í leik með UMFN 2023 þar sem  dómarinn gaf honum rauða spjaldið.