Nesraf
Nesraf

Fréttir

Bæjarstjórn Grindavíkur krefst þess að skólahald hefjist í haust: Treysta verður dómgreind Grindvíkinga
Frá Grindavík. Mynd af vef Grindavíkurbæjar.
Miðvikudagur 15. apríl 2026 kl. 14:31

Bæjarstjórn Grindavíkur krefst þess að skólahald hefjist í haust: Treysta verður dómgreind Grindvíkinga

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur sent frá sér kröftuga yfirlýsingu þar sem skorað er á stjórnvöld að vinna með bæjarbúum að raunverulegri endurreisn samfélagsins. Bæjarstjórnin leggur þunga áherslu á að skólahald verði tryggt næsta haust og vara við hugmyndum um að mismuna íbúum við endurkaup fasteigna eftir fjölskyldugerð.

Í yfirlýsingunni kemur fram að skólastarf sé algjör grunnforsenda þess að barnafjölskyldur geti snúið aftur heim. Bæjaryfirvöld telja að ef skólahaldi verði frestað, þurfi fjölskyldur að búa við óvissu í heilt ár til viðbótar, sem muni skaða uppbyggingu samfélagsins verulega.

Nesraf
Nesraf
Öryggi betur tryggt í skipulögðu starfi

Bæjarstjórn segist deila áhyggjum af öryggismálum en bendir á að mikið starf hafi verið unnið við að fylla í sprungur og girða af hættusvæði. Telja þau öryggi barna betur tryggt í skipulögðu og vöktuðu skólastarfi en í eftirlitslausum frítíma, en mörg börn séu nú þegar í bænum um helgar í íþrótta- og tómstundastarfi.

„Rétt eins og börn á öðrum stöðum læra að varast umferð eða stórfljót, geta börnin okkar lært að umgangast sitt umhverfi með réttri leiðsögn,“ segir í yfirlýsingunni.

Vara við mismunun hjá Þórkötlu

Sérstaklega er vikið að starfsemi fasteignafélagsins Þórkötlu. Bæjarstjórn gerir þá kröfu að félagið gæti fyllsta jafnræðis og mismuni ekki íbúum eftir fjölskyldugerð við endurkaup eigna. Telja þau slíka mismunun stríða gegn stjórnarskrá og geta staðið í vegi fyrir eðlilegri framþróun sveitarfélagsins.

Missir tengslanetsins stærsta áfallið

Bæjaryfirvöld leggja áherslu á að eitt stærsta áfallið sem börn í Grindavík glími við sé missir á daglega umhverfinu, vinum og tengslaneti. Með því að opna skólana sé verið að vinna að velferð barna sem mörg hver upplifi sig einangruð í dag.

Framtíðarsýn bæjarstjórnar er skýr: Öllum fyrrverandi eigendum húsnæðis skuli gert kleift að flytja aftur heim ef þeir svo kjósa og að iðandi mannlíf með skólahaldi verði staðreynd í haust.

Yfirlýsingin í heild sinni:

Íbúar og bæjaryfirvöld í Grindavík eru landsmönnum og stjórnvöldum afar þakklát fyrir þann mikla stuðning sem við höfum fundið fyrir á erfiðum tímum. Til að endurreisn bæjarins geti haldið áfram með farsælum hætti er þó mikilvægt að við vinnum í sameiningu að lausnum, þar sem vilji og þarfir íbúa eru í forgrunni. Við höfum áhyggjur af þeim hugmyndum sem uppi eru um að fresta beri skólahaldi næsta haust og af mögulegri mismunun við endurkaup eigna eftir fjölskyldugerð, þar sem við teljum slíkt geta staðið í vegi fyrir eðlilegri framþróun sveitarfélagsins.

Við teljum mikilvægt að treysta dómgreind Grindvíkinga þegar kemur að ákvörðunum um þeirra eigin mál og endurkomu heim. Skólastarf er algjör grunnforsenda til að gera barnafjölskyldum kleift að snúa aftur, enda hefur alltaf verið eftirsóknarvert að ala upp börn í bænum okkar. Ef ekki yrði af skólahaldi í haust þyrftu fjölskyldur að búa við óvissu í heilt ár í viðbót, sem myndi setja verulegt strik í reikninginn fyrir uppbyggingu samfélagsins.

Við skiljum vel og deilum áhyggjum af öryggismálum, en viljum jafnframt benda á að börnin okkar eru mörg hver nú þegar í bænum um helgar og taka þar þátt í iðandi íþrótta- og tómstundastarfi. Mikið og gott starf hefur verið unnið við að fylla í sprungur og girða af hættusvæði. Við teljum að öryggi barna sé oftar en ekki betur tryggt í skipulögðu og vel vöktuðu skólastarfi fremur en í eftirlitslausum frítíma. Rétt eins og börn á öðrum stöðum læra að varast umferð eða stórfljót, geta börnin okkar lært að umgangast sitt umhverfi með réttri leiðsögn.

Það er sömuleiðis mikilvægt að horfa til þess að eitt stærsta áfallið sem börn og ungmenni okkar kljást við í dag er missir á sínu daglega umhverfi, tengslaneti og vinum. Mörg þeirra sakna skólafélaganna og upplifa sig einangruð. Þess vegna köllum við eftir góðu samstarfi við stjórnvöld og þingmenn Suðurkjördæmis um að finna farsælar lausnir og vinna með okkur að velferð þessara barna. Jafnframt treystum við því að Fasteignafélagið Þórkatla muni gæta fyllsta jafnræðis og mismuni ekki íbúum eftir fjölskyldugerð, í samræmi við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.

Framtíðarsýn okkar er skýr: Að öllum fyrrverandi eigendum húsnæðis verði gert kleift að flytja aftur í hús sín ef þeir svo kjósa, og að skólahald verði tryggt í haust. Við trúum því að með góðu samtali og samvinnu geti endurreisn hins þróttmikla samfélags í Grindavík hafist fyrir alvöru.

Bæjarstjórn Grindavíkur