Nýr valkostur í Vogum
A-listinn – Fyrir samfélagið
Framboðslisti A-listans – Fyrir samfélagið í Vogum, var formlega kynntur síðastliðinn mánudag, samhliða frumsýningu á stefnuskrá listans, í aðdraganda komandi sveitarstjórnarkosninga.
A-listinn er nýr og kraftmikill valkostur í sveitarfélaginu Vogum þar sem saman kemur fjölbreyttur hópur fólks með ólíkan bakgrunn, reynslu og sýn. Hér er á ferðinni hópur einstaklinga sem vill bjóða fram krafta sína, hlusta á raddir íbúa, vinna að raunhæfum og uppbyggilegum lausnum fyrir framtíðina.
Oddviti listans er Gunnar Júlíus Helgason, pípari. Í öðru sæti er Áslaug Fjóla Magnúsdóttir, starfsmaður útfarastofu Suðurnesja. Í þriðja sæti er Hilmar Ólafsson, sérfræðingur í fjármálum. Fjórða sætið skipar Guðrún Ósk Barðadóttir, sjálfboðaliði.
Í stefnuskrá A-listans er lögð áhersla á sterkt og samheldið samfélag þar sem velferð íbúa, gagnsæ stjórnsýsla og ábyrg uppbygging eru í forgrunni. Listinn vill stuðla að auknu samráði við íbúa og skapa vettvang þar sem raddir allra fá að heyrast.
A-listinn – Fyrir samfélagið – býður íbúum Voga upp á nýja sýn, ferska nálgun og raunverulegan vilja til að vinna með fólkinu í sveitarfélaginu.
Frambjóðendur A-listans – Fyrir samfélagið
- Gunnar Júlíus Helgason, pípari
- Áslaug Fjóla Magnúsdóttir, starfsmaður útfarastofu Suðurnesja
- Hilmar Ólafsson, sérfræðingur í fjármálum
- Guðrún Ósk Barðadóttir, sjálfboðaliði
- Ásgeir Ragnar Ásgeirsson, formaður félags eldriborgara í Vogum
- Ingibjörg Njarðvík, þjónustu sérfræðingur
- Bergur Álfþórsson, leiðsögumaður
- Nanna Lovísa Zophaníasdóttir, dýranuddari
- Óðinn Hilmisson, húsasmiður
- Jóhanna Brynja Ólafsdóttir, leiðbeinandi
- Tadej Venta, umhverfisverkfræðingur
- Glóð Jónsdóttir, háskólanemi
- Nökkvi Bergsson, húsasmiður
- Anton Helgi Hermóðsson, flugþjónustuaðili






