KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Fordæmir vinnubrögð og framkomu ráðuneytis - nemendur gengu út
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 16. apríl 2026 kl. 15:18

Fordæmir vinnubrögð og framkomu ráðuneytis - nemendur gengu út

Starfsfólk Fjölbrautaskóla Suðurnesja fordæmir vinnubrögð og framkomu mennta- og barnamálaráðuneytisins. Það að skólameistari þurfi að grípa til þessa örþrifaráðs er áfall fyrir starfsfólk skólans, segir í yfirlýsingu starfsfólks Fjölbrautaskóla Suðurnesja vegna uppsagnar skólameistara í dag.
„Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur um árabil ekki staðið við gefin loforð um viðbyggingu og bætta aðstöðu þrátt fyrir að húsnæði skólans sé fyrir löngu orðið of lítið og aðstaða sprungin.
Ekkert hefur þokast áfram í þessum málum og í kjölfar tilkynningar skólameistara í dag um ástæðu uppsagnar er ljóst að úrbætur eru ekki fyrirsjáanlegar á næstunni. Af þeim sökum hefur Kristján Ásmundsson, skólameistari, sagt upp stöðu sinni í mótmælaskyni.
Við skorum á ráðuneytið að standa við gefin loforð og hefja framkvæmdir við stækkun skólans strax í sumar. Rétt eins og skólameistari hörmum við áhugaleysi stjórnvalda á málefnum skólans,“ segir í yfirlýsingunni.
Nemendur tóku líka til sinna ráða í dag og gengu út. 
Nesraf
Nesraf