KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Skólameistari FS hefur fengið nóg og segir upp
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 16. apríl 2026 kl. 13:12

Skólameistari FS hefur fengið nóg og segir upp

Kristján Ásmundsson skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur sagt starfi sínu lausu þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af fimm ára skipunartíma sínum. Hann tók þá ákvörðun eftir fund í menntamálaráðuneytinu í morgun þar sem fram kom að framkvæmdir við fyrirhugaða viðbyggingu við skólann hafi verið settar á ís. Þetta kemur fram á heimasíðu FS.

Ákvörðun um viðbyggingu fyrir verk- og starfsnám við fjóra framhaldsskóla var tekin fyrir tveimur árum. Á fundinum með ráðuneytisfólki kom fram að engar ákvarðanir hafa verið teknar um tímasetningu eða annað varðandi viðbyggingu við skólann. Því er ljóst að skólinn þarf að bíða enn um sinn eftir úrbótum varðandi húsnæði fyrir verk- og starfsnám en einnig bóknám og aðstöðu fyrir nemendur og starfsfólk. Skólinn nýtir nú þrjá lausa gáma sem kennslustofur og leigir húsnæði á tveimur stöðum í bæjarfélaginu fyrir kennslu. Einnig er búið að breyta geymslum í kennsluaðstöðu og breyta bóknámsstofum í verklega aðstöðu. Í skólanum er mjög stór starfsbraut og mikill fjöldi nemenda með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. Skólastarfið er því mjög fjölbreytt og mikilvægt fyrir samfélagið á Suðurnesjum. Nú þegar farið er að þrengja að á öllum sviðum varðandi húsnæði skólans er aðstöðuleysi farið að hafa veruleg áhrif á skólastarfið og starfsemi skólans.

Kristján telur nóg komið og hefur ákveðið að hætta störfum við skólann. Hann telur að hann komist ekki lengra með þetta mál og harmar áhugaleysi stjórnvalda á málefnum skólans.

Nesraf
Nesraf

Frétt VF 2025 um fyrirhugaða viðbyggingu við FS.