HSS
HSS

Fréttir

Byggt verður við Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Þriðjudagur 10. júní 2025 kl. 11:16

Byggt verður við Fjölbrautaskóla Suðurnesja

Ríkisstjórn Íslands leggur áherslu á eflingu iðn- og verknáms um land allt. Viðbygging við fimm verknámsskóla víðs vegar um landið er mikilvægur liður í þessu. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í vetur að loknu útboði. Fjölbrautaskóli Suðurnesja er einn þessara skóla, samkvæmt frétt sem birt er á vef stjórnarráðsins.

Nú í sumar hefst annar áfangi opinberra framkvæmda við fullnaðarhönnun og áætlunargerð vegna viðbygginga við fjóra verknámsskóla. Skólarnir fjórir eru Menntaskólinn á Ísafirði (MÍ), Fjölbrautaskóli Suðurnesja (FS), Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra (FNV) og Verkmenntaskólinn á Akureyri (VMA) og eru verkin unnin í samstarfi við viðeigandi sveitarfélög. Að auki standa yfir framkvæmdir við viðbyggingu Fjölbrautaskólans í Breiðholti (FB) sem hófust seint á síðasta ári, segir í fréttinni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu liggur fyrir uppsafnað fjármagn til þessara framkvæmda upp á 2,6 milljarða króna og hefur flutningur fjárheimilda í málaflokknum milli ára í þeirri fjármálaáætlun sem fyrir liggur á Alþingi ekki áhrif hvað þetta varðar. Að loknum öðrum áfanga framkvæmdanna, þar á meðal hönnun viðbygginganna, mun liggja fyrir uppfærð heildarkostnaðaráætlun og tímalína sem mun endurspeglast í næstu fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar verði þess þörf.

„Ríkisstjórnin hyggst hefja framkvæmdir við fjóra verknámsskóla sem eru Menntaskólinn á Ísafirði, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra  og Verkmenntaskólinn á Akureyri. Það strandar ekki á fjármagni – en nú er komið að öðrum áfanga sem snýr að hönnun og nákvæmari áætlanagerð. Því til viðbótar klárum við viðbyggingu Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Við látum verkin tala í þessu eins og öðru,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, í frétt stjórnarráðsins.