Fréttir

Sex sóttu um stöðu skólastjóra í Grindavík
Grunnskóli Grindavíkur. Mynd: grindavik.is
Fimmtudagur 26. mars 2026 kl. 04:08

Sex sóttu um stöðu skólastjóra í Grindavík

Sex umsóknir bárust um stöðu skólastjóra við nýjan samrekinn leik- og grunnskóla í Grindavík, en umsóknarfrestur rann út þann 16. mars síðastliðinn.

Grindavíkurbær stendur nú frammi fyrir breytingum í skólastarfi með sameiningu skólastiga og er val á nýjum skólastjóra liður í þeirri vegferð. Umsækjendur um stöðuna eru:

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir
  • Fríða Egilsdóttir

  • Guðlaug Erlendsdóttir

  • Guðmundur Stefán Gunnarsson

  • Ólöf Daðey Pétursdóttir

  • Rannveig Jónína Guðmundsdóttir

  • Vera Sólveig Ólafsdóttir