Suðurnesjamagasín: Guðný Birna í Oddvitasætinu
Guðný Birna Guðmundsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, hefur setið í bæjarstjórn undanfarin þrjú kjörtímabil.
Í ítarlegu viðtali við Víkurfréttir fer hún yfir fjárhagslega endurskipulagningu bæjarins, uppbyggingu innviða, áskoranir sem fylgja því að vera ört vaxandi ferðaþjónustubær, samstarfið í meirihlutanum og hvort hún vilji verða næsti bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Í spilaranum er hægt að horfa á viðtalið í heild sinni.
Þetta er annað Oddvitasætið sem Víkurfréttir birta. Áður hefur verið birt viðtal við Vilhjálm Árnason, oddvita Sjálfstæðisflokks í Reykjanesbæ. Aðrir oddvitar verða teknir í viðtöl á næstu vikum og viðtölin birt með sama hætti í miðlum Víkurfrétta.

