Tími þungaiðnaðar í Helguvík er formlega liðinn
Mánudagurinn var sögulegur dagur í Helguvík þegar niðurrif kísilversins hófst formlega. Guðný Birna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, fékk það verkefni að rífa fyrstu plötuna af mannvirkinu og segir hún það hafa verið mikinn heiður að fá að ræsa verkið, þótt hún telji sig ekki reyndasta gröfustjóra landsins.
Sigurgeir Jóhannsson hjá Reykjanes Investment segir að næstu mánuðir fari í stífa vinnu við að fjarlægja mannvirkin. Fyrirtækið er búið að selja Reykjanesbæ lóðina að nýju og hefur skuldbundið sig til að skila henni byggingarhæfri. Sigurgeir segir að stefnt sé að því að ljúka niðurrifi á stóru húsunum á efri lóðinni og öllum lögnum nú í sumar, en það eru einmitt þau mannvirki sem hafa farið mest fyrir brjóstið á íbúum Reykjanesbæjar. Á haustmánuðum verður svo farið í að fjarlægja plötur og dót sem liggur neðanjarðar.
Guðný Birna segir að þegar lóðin kemur aftur til bæjarins skapist þar mikil tækifæri til að efla atvinnulífið á nýjum forsendum. Hún segir staðsetninguna einstaka, enda stutt í bæði höfn og flugvöll, og því séu þetta frábærar atvinnulóðir á besta stað. Hugmyndir um nýja nýtingu eru þegar í mótun hjá bænum og er ljóst að nálgunin verður önnur en áður.
Aðspurð hvort tími þungaiðnaðar á svæðinu sé á enda, svarar Guðný því játandi og segir þann tíma formlega liðinn. Hún leggur áherslu á að sagan í kringum kísilverið hafi verið erfið og mikilvægt sé að draga lærdóm af henni. Nú sé hins vegar kominn tími til að horfa fram á veginn og byggja upp nýja framtíð fyrir samfélagið í Reykjanesbæ. „Við þurfum bara að læra af þessu og gera gott verkefni framundan, og það ætlum við vissulega að gera,“ segir Guðný Birna að lokum.
Guðný Birna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, og Sigurgeir Jóhannsson frá Reykjanes Investment. VF/hilmarbragi