Flóttaleiðum frá Grindavík haldið opnum eftir fremsta megni
Vegna gulrar og appelsínugulrar viðvörunar á morgun, 26. mars, hafa viðbragðsaðilar í Grindavík virkjað sérstakan viðbúnað. Gert er ráð fyrir hríðarveðri og mjög slæmu skyggni frá kl. 05:00 til 13:00.
Helstu aðgerðir og upplýsingar:
-
Snjóruðningur: Snjóruðningstæki og ökumenn verða til taks í Grindavík í alla nótt. Lögð verður áhersla á að halda flóttaleiðum opnum eftir fremsta megni, en þær gætu þó lokast með stuttum fyrirvara. Íbúagötur verða mokaðar eftir getu.
-
Viðbragð:Vakt slökkviliðs og björgunarsveita verður til staðar og aðgerðastjórn lögreglu verður virkjuð í fyrramálið.
-
Áskorun til fyrirtækja: Fyrirtæki í Grindavík eru hvött til að meta hvort fresta eigi komu starfsfólks til vinnu þar til veður og færð batna eftir hádegi.
-
Færð: Búast má við mikilli ófærð á meðan veðrið gengur yfir. Veður á að ganga niður eftir hádegi.
Íbúar og starfsfólk eru hvött til að fylgjast vel með opinberum tilkynningum og færð á vegum.



