Óveðurspáin: Óvissa vegna jarðhræringa við Grindavík
Áframhaldandi óvissa með landris og jarðhræringar halda áfram á svæðinu í kringum Grindavík og Svartsengi.
Viðbragðsaðilar funduðu í morgun til að meta aðstæður í Grindavík sökum veðurs og verður viðbragð aukið meðan óvissa með veður er til staðar. Vakt slökkviliðs verður til staðar ásamt björgunarsveit og þá hefur verður aðgerðastjórn lögreglu virkjuð í fyrramálið.
Þar sem enn ríkir óvissa með jarðhræringar og landris mælist enn undir Svartsengi með mögulegri eldgosshættu, er almenningi, ferðamönnum og íbúum svæðisins ráðlagt til að kynna sér vel aðstæður og að það gæti komið til þess að flóttaleiðir frá bænum lokist með stuttum fyrirvara.
Fyrirtækjaeigendur í Grindavík eru einnig beðnir um að hafa í huga að fresta komu starfsfólks þangað til að veður gengur niður og færð sé í lagi.
Fólk er hvatt til að fylgjast með tilkynningum frá Veðurstofu Íslands, Vegagerðinni og Lögreglunni á þeirra miðlum, segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.



