Appelsínugul viðvörun á Suðurnesjum á morgun og ekkert ferðaveður
Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir Suðurnesin og Faxaflóa á morgun, fimmtudaginn 26. mars. Búist er við suðaustan roki og stórhríð með vinhviðum sem gætu farið yfir 40 m/s. Björgunarsveitir og veðurfræðingar vara við mikilli óreiðu í fyrramálið.
Vaxandi suðaustan- og austanátt í nótt, 18-28 m/s í fyrramálið og talsverð snjókoma eða slydda, hvassast suðvestantil, en hægari og úrkomuminna um landið norðaustanvert. Snýst í sunnan 8-15 eftir hádegi með slydduéljum, en austan hvassviðri og snjókoma norðan- og austantil fram á kvöld. Hlýnar í veðri, hiti um eða yfir frostmarki síðdegis, segir í veðurspá Veðurstofu Íslands nú í morgun.
Viðvörunin tekur gildi klukkan 07:00 í fyrramálið og gildir til klukkan 13:00. Spáð er suðaustan 20–28 m/s. Samfara hvassviðrinu verður talsverð snjókoma eða slydda sem mun valda mjög slæmu skyggni og versnandi færð á Reykjanesbraut og öðrum vegum á svæðinu.
Sjaldgæfur vindur í efri lögum
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir í færslu á samfélagsmiðlum að útlit sé fyrir ákveðið „kaos“ eða óreiðu í fyrramálið. Hann bendir á að spákort sýni fátíðan vindhraða í 500 metra hæð, þar sem fjólubláir litir gefa til kynna allt að 40 m/s.
„Svo mikill vindur í þessari hæð sést kannski einu sinni á vetri,“ segir Einar í færslunni. Hann telur að úr verði talsverður bylur á versta tíma á virkum degi, eða frá því klukkan 7 eða 8 og fram undir hádegi.
Björgunarsveitir vara við ferðalögum
Björgunarsveitin Suðurnes hvetur fólk til að sýna fyllstu varúð. Í tilkynningu frá sveitinni segir:
„Förum varlega, verum ekkert á ferðinni nema nauðsynlega þurfi. Ef þig vantar aðstoð þá minnum við á 1-1-2.“
Hætta á foktjóni
Vegna hins mikla vindhraða er veruleg hætta á foktjóni. Íbúar á Suðurnesjum eru hvattir til að nýta daginn í dag til að huga að lausamunum utandyra og tryggja allt sem farið getur af stað í hviðunum á morgun.
Gert er ráð fyrir að það lægi þegar líður á daginn á morgun. Fólk er hvatt til að fylgjast með tilkynningum um veður og færð.




