Fréttir

Hætt við grenndargáma við Elliðavelli eftir mótmæli íbúa
Þriðjudagur 24. mars 2026 kl. 10:47

Hætt við grenndargáma við Elliðavelli eftir mótmæli íbúa

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur ákveðið að falla frá áformum um staðsetningu grenndarstöðvar við Elliðavelli og Bjarnaróló. Ákvörðunin er tekin í kjölfar grenndarkynningar þar sem íbúar lýstu þungum áhyggjum af öryggi barna og umhverfi sínu.

Anna Karen Sigurjónsdóttir, sjálfbærnifulltrúi bæjarins, mætti á fund ráðsins þar sem farið var yfir niðurstöður grenndarkynningarinnar.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir
Óttast um öryggi barna og fasteignaverð

Í þeim athugasemdum sem bárust frá íbúum var megininntakið áhyggjur af aukinni umferð við grenndarstöðina. Töldu íbúar að það myndi skapa verulega hættu fyrir börn að leik á svæðinu.

Einnig komu fram áhyggjur af því að grenndarstöðinni myndi fylgja sóðaskapur og óþrifnaður, sem aftur gæti haft neikvæð áhrif á fasteignaverð nærliggjandi eigna.

Leitað að nýjum stað

Umhverfis- og skipulagsráð tók undir þessi sjónarmið íbúanna og samþykkti að fela starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs að finna hentugri staðsetningu. Markmiðið er að finna nýjan stað fyrir grenndarstöðina á eða nálægt viðkomandi svæði sem skapar minni truflun fyrir nærumhverfið.