Fréttir

Tjaldsvæðið í Grindavík opnað að nýju
Mánudagur 23. mars 2026 kl. 13:59

Tjaldsvæðið í Grindavík opnað að nýju

Tjaldsvæðið í Grindavík var opnað fyrir gesti mánudaginn 16. mars og er gert ráð fyrir að það verði opið fram í nóvember, eða svo lengi sem veður og aðstæður leyfa. Svæðið var mjög vel sótt á síðasta ári og ríkti mikil ánægja með nýtinguna, en forsvarsmenn svæðisins vonast eftir að sú jákvæða þróun haldi áfram í sumar og haust.

Starfsfólk tjaldsvæðisins hlakkar til að taka á móti gestum og hvetur þá sem vanta nánari upplýsingar til að hafa samband í gegnum netfangið [email protected]. Öll eru hjartanlega velkomin á tjaldsvæðið í Grindavík á komandi misserum, segir í frétt á vef bæjarins.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir