Hvalur gaf skít í myndatökumann Víkurfrétta
Við sögðum ykkur í vikunni frá hnúfubak sem var að spóka sig skammt undan strandleiðinni við Bergið í Keflavík. Hvalurinn var greinilega í góðu æti og kafaði oft niður í djúpið þannig að hann hvarf sjónum myndatökumanns Víkurfrétta.
Í gegnum myndavél flygildis má nú sjá ýmislegt sem ekki sést með berum augum í landi. Þannig ákvað hnúfubakurinn að gefa skít í myndatökumanninn. Sjón er sögu ríkari.