Kröftugir skjálftar við Eldey
Uppúr hádegi í dag hófst skjálftahrina um 25 km SV af Eldey á Reykjaneshrygg. Stærsti skjálftinn sem nú þegar hefur mælst var 4,1 að stærð, en það er stærsti skjálftinn sem mælst hefur á svæðinu síðan í september á síðasta ári.
Jarðskjálftahrinur eru algengar á þessu svæði, en síðast varð hrina á þessum slóðum í byrjun febrúar.



